Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1295/2022

Nr. 1295/2022 29. nóvember 2022

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.

1. gr.

Við 6. gr. reglugerðarinnar bætast 2 nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1042 frá 23. júlí 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferðir er varða stuðningsáætlanir, sálrænt mat á flugáhöfn, sem og kerfisbundna og handahófs­kennda skimun fyrir geðvirkum efnum til að tryggja heilbrigði flugliða og öryggis- og þjónustu­liða og að því er varðar uppsetningu á landslagsgreiningarkerfi í nýlega framleiddar flugvélar, knúnar hverfihreyflum með 5.700 kg skráðan hámarksflugtaksmassa eða minna og sem samþykktar hafa verið til að bera sex til níu farþega, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 25/2020 frá 7. febrúar 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjónar­­tíðindi Evrópu­sambandsins nr. 16 frá 12. mars 2020, bls. 442-447.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/745 frá 4. júní 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) 2018/1042 að því er varðar frestun á framkvæmd tiltekinna ráðstafana í tengslum við COVID-19 heimsfaraldurinn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 223/2020 frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjónartíðindi Evrópusambandsins nr. 7 frá 28. janúar 2021, bls. 696-697.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 102. gr., a-lið 115. gr. og 7. mgr. 254. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 29. nóvember 2022.

 

F. h. r.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.


B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2022