Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1386/2023

Nr. 1386/2023 24. nóvember 2023

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 205/2023 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænt ræktaðra vara.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/207 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 að því er varðar fyrirmynd að vottorði þar sem staðfest er að farið hafi verið að reglum um lífræna framleiðslu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 209/2023, frá 22. sept­ember 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 79, frá 2. nóvember 2023, bls. 369.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og II. kafla laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 24. nóvember 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 18. desember 2023