1. gr.
Ríkisskattstjóri skal eigi síðar en 31. maí 2019 hafa lokið álagningu opinberra gjalda á menn. Álagningu lögaðila með sjálfstæða skattaðild skal vera lokið eigi síðar en 30. september 2019. Álagningu á lögaðila sem fengið hafa heimild til að hafa annað reikningsár til skattskila en almanaksárið skal lokið eigi síðar en sex mánuðum eftir að því reikningsári lýkur.
2. gr.
Auglýsing þessi, sem sett er með heimild í 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 9. janúar 2019.
F. h. r.
Helga Jónsdóttir.
Ingibjörg Helga Helgadóttir.
|