Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 37/2018

Nr. 37/2018 22. janúar 2018

GJALDSKRÁ
Sjúkratrygginga Íslands fyrir dagdvöl aldraðra á vegum stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2018 og eru án samnings um verð við Sjúkratryggingar Íslands.

1. gr.

Gildissvið.

Gjaldskráin tekur til daggjalda fyrir þjónustu við sjúkratryggða einstaklinga í dagdvalarrýmum á vegum stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2018 og eru án samnings við Sjúkra­tryggingar Íslands.

Sjúkratryggingar Íslands ákvarða hvort einstaklingur telst sjúkratryggður, sbr. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar.

Dagdvalarrými er stuðningsúrræði fyrir aldraða, sbr. lög nr. 125/1999 um málefni aldraðra.

Gjaldskráin kveður á um daggjöld skv. 38. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra með breytingum skv. reglugerð nr. 1174/2017.

2. gr.

Daggjöld vegna þjónustu í dagdvalarrýmum.

Daggjald fyrir þjónustu í dagdvalarrými er greitt eftir hvern almanaksmánuð.

Tilgreindur fjöldi dagdvalarrýma ákvarðar umfang þjónustunnar sem greiðsluþátttaka Sjúkra­trygg­inga Íslands tekur til. Miðað er við að þjónusta í dagdvalarrými sé í boði 250 daga ársins og í samræmi við áætlun sem Sjúkratryggingar Íslands hafa samþykkt.

Miðað er við að ein koma í dagdvalarrými vari í a.m.k. 6 klst. á dag. Innifalið í daggjöldum dag­dvalar­rýma er nauðsynlegur flutningskostnaður og hvers konar þjónusta sem látin er í té á stofn­unum, sbr. meðal annars reglugerð nr. 427/2013, um greiðslur öldrunarstofnana fyrir heil­brigðis­þjónustu.

Daggjöld fyrir dagdvalarrými skulu vera sem hér segir:

Nr. Tegund dagdvalar   Fjöldi dagdvalarrýma Daggjald  
  A. Heilbrigðisumdæmi höfuðborgarsvæðisins    
A1 Almenn dagdvöl Hrafnista, Hafnarfirði 26 6.895 kr.
A2 Dagdvöl með sérhæfðri endurhæfingu Hrafnista, Reykjavík 30 18.768 kr.
A3 Almenn dagdvöl Hrafnista, Boðaþingi, Kópavogi 30 6.895 kr.
A4 Dagdvöl fyrir heilabilaða Hlíðarbær, dagdvöl, Reykjavík 22 15.027 kr.
A5 Dagdvöl fyrir heilabilaða Roðasalir, Kópavogi 20 15.027 kr.
A6 Almenn dagdvöl Sunnuhlíð, Kópavogi 14 6.895 kr.
A7 Dagdvöl fyrir heilabilaða Sunnuhlíð, Kópavogi 6 15.027 kr.
A8 Dagdvöl fyrir heilabilaða Vitatorg, dagdvöl, Reykjavík 18 15.027 kr.
A9 Almenn dagdvöl Hlaðhamrar, dagdvöl, Mosfellsbæ 9 6.895 kr.
A10 Dagdvöl fyrir heilabilaða Eir, Reykjavík 48 15.027 kr.
A11 Almenn dagdvöl Dagdvöl Seltjarnarness 9 6.895 kr.
A12 Almenn sérhæfð dagdvöl MS-setrið, dagdvöl, Reykjavík 40 13.735 kr.
A13 Almenn sérhæfð dagdvöl Múlabær, dagdvöl, Reykjavík 56 9.815 kr.
A14 Dagdvöl fyrir heilabilaða Fríðuhús, dagdvöl, Reykjavík 18 15.027 kr.
A15 Dagdvöl fyrir heilabilaða Drafnarhús, dagdvöl, Hafnarfirði 22 15.027 kr.
A16 Dagdvöl fyrir heilabilaða Maríuhús, dagdvöl, Reykjavík 22 15.027 kr.
A17 Almenn dagdvöl Sólvangur, Hafnafirði 14 6.895 kr.
A18 Almenn dagdvöl Ísafold, Garðabæ 16 6.895 kr.
A19 Dagdvöl fyrir heilabilaða Ísafold, Garðabæ 4 15.027 kr.
A20 Almenn dagdvöl Þorrasel, dagdvöl, Reykjavík 50 6.895 kr.
         
  B. Heilbrigðisumdæmi Suðurnesja    
B1 Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Reykjanesbæ 15 6.895 kr.
B2 Dagdvöl fyrir heilabilaða Dagdvöl aldraðra, Reykjanesbæ 11 15.027 kr.
B3 Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Grindavík 5 6.895 kr.
         
  C. Heilbrigðisumdæmi Vesturlands    
C1 Almenn dagdvöl Barmahlíð, Reykhólum 2 6.895 kr.
C2 Almenn dagdvöl Dvalarheimili aldraðra, Stykkishólmi 2 6.895 kr.
C3 Almenn dagdvöl Jaðar, Ólafsvík 2 6.895 kr.
C4 Almenn dagdvöl Brákarhlíð, Borgarnesi 4 6.895 kr.
C5 Almenn dagdvöl Höfði, Akranesi 20 6.895 kr.
C6 Almenn dagdvöl Fellaskjól, Grundarfirði 1 6.895 kr.
C7 Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Hvammstanga 5 6.895 kr.
C8 Dagdvöl fyrir heilabilaða Brákarhlíð, Borgarnesi 1 15.027 kr.
         
  D. Heilbrigðisumdæmi Vestfjarða    
D1 Almenn dagdvöl Hlíf, dagdvöl, Ísafirði 8 6.895 kr.
D2 Almenn dagdvöl Sunnuhlíð, dagdvöl, Suðureyri 5 6.895 kr.
         
  E. Heilbrigðisumdæmi Norðurlands    
E1 Almenn dagdvöl Hornbrekka, Ólafsfirði 6 6.895 kr.
E2 Almenn dagdvöl Hvammur, Húsavík 23 6.895 kr.
E3 Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Siglufirði 7 6.895 kr.
E4 Almenn dagdvöl HSN, Blönduósi 2 6.895 kr.
E5 Almenn dagdvöl Öldrunarstofnun Akureyrar, Hlíð 20 6.895 kr.
E6 Dagdvöl fyrir heilabilaða Öldrunarstofnun Akureyrar, Hlíð 15 15.027 kr.
E7 Dagdvöl fyrir heilabilaða Öldrunarstofnun Akureyrar, Eyjafjarðarsveit 1 15.027 kr.
E8 Almenn dagdvöl Naust, Þórshöfn 4 6.895 kr.
E9 Almenn dagdvöl Dalbær, Dalvík 14 6.895 kr.
E10 Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Skagafirði 11 6.895 kr.
         
  F. Heilbrigðisumdæmi Austurlands    
F1 Almenn dagdvöl Uppsalir, Fáskrúðsfirði 2 6.895 kr.
F2 Almenn dagdvöl HSA, Neskaupstað 1 6.895 kr.
F3 Almenn dagdvöl HSA, Seyðisfirði 2 6.895 kr.
F4 Almenn dagdvöl Lagarás, Egilsstöðum 5 6.895 kr.
F5 Dagdvöl fyrir heilabilaða Lagarás, Egilsstöðum 3 15.027 kr.
F6 Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Djúpavogi 4 6.895 kr.
F7 Almenn dagdvöl Dagdvalarheimilið Breiðdalsvík 5 6.895 kr.
F8 Almenn dagdvöl Sundabúð, Vopnafirði 1 6.895 kr.
         
  G. Heilbrigðisumdæmi Suðurlands    
G1 Almenn dagdvöl Hraunbúðir, Vestmannaeyjum 10 6.895 kr.
G2 Almenn dagdvöl Kirkjuhvoll, Hvolsvelli 2 6.895 kr.
G3 Almenn dagdvöl Klausturhólar, Kirkjubæjarklaustri 1 6.895 kr.
G4 Almenn dagdvöl Lundur, Hellu 2 6.895 kr.
G5 Almenn dagdvöl Ás/Ásbyrgi, Hveragerði 5 6.895 kr.
G6 Almenn dagdvöl Árborg, dagdvöl, Selfossi 11 6.895 kr.
G7 Dagdvöl fyrir heilabilaða Árborg, dagdvöl, Selfossi 10 15.027 kr.
G8 Almenn dagdvöl Dagdvöl aldraðra, Þorlákshöfn 8 6.895 kr.
G9 Almenn dagdvöl Hjallatún, Vík 2 6.895 kr.
G10
Almenn dagdvöl
HSU, Hornafirði
7
6.895 kr.
      739  

3. gr.

Húsnæðisdaggjald.

Húsnæðisdaggjald fyrir dagdvalarrými mætir viðhaldskostnaði húsnæðis sem nýtt er til reksturs þeirra. Húsnæðisdaggjald árið 2018 er kr. 348 á dag fyrir að hámarki 30 fermetra dagdvalarrými.

Húsnæðisdaggjaldið fyrir dagdvalarrými hlutfallast í samræmi við stærð rýmisins og reiknast aldrei á stærra rými en hámarkið segir til um.

4. gr.

Greiðsluþátttaka.

Greiðsluþátttaka hins sjúkratryggða vegna dagdvalar fer samkvæmt 19. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum, sbr. einnig reglugerð nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra, með breytingum skv. reglugerð nr. 1174/2017.

5. gr.

Dagdvöl með sérhæfðri endurhæfingu.

Í dagdvöl með sérhæfðri endurhæfingu felst dagþjálfun þar sem áhersla er lögð á líkamlega þjálfun og félagslega virkni. Þjónustan er eingöngu fyrir aldraða sem geta nýtt sér endurhæfingu til að auka hæfni til að búa heima. Dagþjálfunin er 8-10 vikna úrræði 3-5 daga vikunnar og opin frá kl. 8-19 alla virka daga. Umsókn um dagþjálfun þarf að vera á þar til gerðu eyðublaði og henni þurfa að fylgja læknabréf og beiðni um iðju- og/eða sjúkraþjálfun. Fulltrúi Hrafnistu, heimaþjónustu Reykjavíkur, heilsugæslustöðva höfuðborgarsvæðisins, útskriftarteymis LSH eða heimilislæknir hlutaðeigandi einstaklings geta sótt um dagþjálfunina. Þurfi að forgangsraða í úrræðið skal taka tilliti til dagsetningar umsóknar, ástæðu hennar og þess hvort umsækjandi hafi verið áður í sams konar þjálfun og þá hversu langt er liðið frá henni. 

6. gr.

Rafræn samskipti og reikningsupplýsingar.

Reikningar skulu uppfylla skilyrði laga og reglna á hverjum tíma. Þeir skulu vera á því formi sem Sjúkratryggingar Íslands ákveða. Reikningar vegna kostnaðar við veitta þjónustu skulu sendir Sjúkratryggingum Íslands mánaðarlega.

Við sendingu rafrænna reikningsupplýsinga ber að fara eftir færslulýsingu sem Sjúkratryggingar Íslands hafa samþykkt. Rafræn samskipti aðila og varðveisla gagna skulu fara eftir ákvæðum laga um bókhald nr. 145/1994. Rekstraraðilar bera kostnað af innskráningu upplýsinga, en ekki vegna reksturs og viðhalds RAI-gagnagrunns og þjónustukerfa Sjúkratrygginga Íslands.

Ef ekki reynist unnt að ákvarða rétt til greiðslu eða fjárhæð hennar vegna skorts á nauðsynlegum upplýsingum er Sjúkratryggingum Íslands heimilt að fresta greiðslu þar til úr því er bætt. Stofnunin skal gera viðkomandi heimili viðvart ef til frestunar kemur, leiðbeina um hvaða upplýsingar skortir og skora á það að veita þær innan viðhlítandi frests.

7. gr.

Gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett með stoð í 38. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, sbr. síðari breytingar, og 7. gr. reglugerðar nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra sem breytt er með reglugerð nr. 1174/2017 og tekur til þjónustu sem veitt er eftir 1. janúar 2018. Gjaldskráin gildir frá 1. janúar 2018 til og með 31. desember 2018, sbr. reglugerð nr. 1174/2017. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 52/2017 með síðari breytingum. 

Sjúkratryggingum Íslands, 22. janúar 2018.

Steingrímur Ari Arason.

Katrín E. Hjörleifsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 23. janúar 2018