Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 244/2023

Nr. 244/2023 24. febrúar 2023

GJALDSKRÁ
vegna mats á umhverfisáhrifum framkvæmda.

1. gr.

Skipulagsstofnun skal innheimta gjald af framkvæmdaraðilum vegna kostnaðar stofnunarinnar af málsmeðferð, sbr. 8. og 22.–24. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og V. kafla reglugerðar nr. 1381/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

 

2. gr.

Gjaldið skal vera kr. 19.000 fyrir hverja unna klukkustund sérfræðings. Til viðbótar innheimtir Skipulagsstofnun útlagðan kostnað stofnunarinnar vegna málsins, s.s. ferðakostnað, auglýsinga­kostnað o.þ.h. samkvæmt framlögðum reikningum.

 

3. gr.

Skipulagsstofnun innheimtir áfallinn kostnað af framkvæmdaraðilum við umfjöllun um mats­áætlun og vegna forsamráðs, ef við á, þegar álit stofnunarinnar um matsáætlun liggur fyrir. Eftir að álit um umhverfismat framkvæmdar liggur fyrir skal Skipulagsstofnun innheimta kostnað stofnunar­innar vegna umfjöllunar um umhverfismatsskýrslu, kynningu og auglýsingu, sérfræðiálit, athugun og álit af framkvæmdaraðilum. Upphæð skal taka mið af kostnaði við málsmeðferð Skipulagsstofnunar og má gjaldið ekki vera hærra en sá kostnaður.

 

4. gr.

Eindagi gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er 30 dögum eftir útgáfu reiknings. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga hafi gjöld ekki verið greidd á eindaga. Heimilt er að innheimta kostnað sem hlýst af innheimtu gjalda séu þau ekki greidd á eindaga.

 

5. gr.

Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt heimild í 4. mgr. 33. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 205/2016 vegna mats á umhverfisáhrifum.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 24. febrúar 2023.

 

F. h. r.

Sigríður Svana Helgadóttir.

Kjartan Ingvarsson.


B deild - Útgáfud.: 10. mars 2023