Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 307/2020

Nr. 307/2020 3. apríl 2020

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 858/2014 um úthlutun afgreiðslutíma flugvalla.

1. gr.

Við 5. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi töluliður:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/459 frá 30. mars 2020 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 95/93 um sameiginlegar reglur um úthlutun afgreiðslutíma á bandalagsflugvöllum, samanber ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 48/2020, frá 3. apríl 2020.

 

2. gr.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/459, sem nefnd er í 1. gr., er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 57. gr. c, sbr. 145. gr. laga um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 3. apríl 2020.

 

F. h. r.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 3. apríl 2020