Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 485/2020

Nr. 485/2020 20. maí 2020

REGLUGERÐ
um (7.) breytingu á reglugerð nr. 900/2018 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470 um að koma á fót skrá Sambandsins yfir nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 um nýfæði.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður, 35. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1272 frá 29. júlí 2019 um leiðréttingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470 um að koma á fót skrá Sambandsins yfir nýfæði og framkvæmdarákvörðun 2017/2078 um leyfi fyrir rýmkun á notkun betaglúkani úr geri sem nýtt innihaldsefni í matvælum samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 258/97. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 58/2020, frá 30. apríl 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31, frá 14. maí 2020, bls. 70.

 

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. maí 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 27. maí 2020