Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1301/2017

Nr. 1301/2017 28. desember 2017

GJALDSKRÁ
fyrir sorphirðu og förgun úrgangs í Hörgársveit.

1. gr.

Sveitarstjórn Hörgársveitar hefur ákveðið, sbr. heimild í samþykkt um sorphirðu sveitarfélaga á Norðurlandi eystra nr. 541/2000, að leggja á sorpgjald í sveitarfélaginu fyrir árið 2018 skv. gjaldskrá þessari. Gjaldið skal innheimt með fasteignagjöldum.

2. gr.

Sorpgjald heimila er kr. 55.000 fyrir árið 2018. Sorpgjald frístundahúsa er kr. 17.150 fyrir árið 2018, miðað við að þjónusta er ekki veitt að vetri til (1. október – 30. apríl). Sorpgjald búrekstrar er 100 kr. fyrir hverja sauðkind, 425 kr. fyrir hvert hross, 550 kr. fyrir hvert svín og 595 kr. fyrir hvern nautgrip.

3. gr.

Gjaldskrá þessi sem var samþykkt í sveitarstjórn Hörgársveitar 28. nóvember 2017 er sett samkvæmt ákvæðum 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 með síðari breytingum. Gjaldskráin tekur þegar gildi og fellur á sama tíma úr gildi gjaldskrá 104/2017 fyrir sorphirðu og förgun úrgangs í Hörgársveit.

Samkvæmt 8. gr. samþykktar um sorphirðu sveitarfélaga á Norðurlandi eystra nr. 541/2000 með síðari breytingu hefur Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra veitt umsögn um ofangreinda gjaldskrá þann 28. desember 2017.

Hörgársveit, 28. desember 2017.

Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 12. janúar 2018