Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1125/2023

Nr. 1125/2023 23. október 2023

REGLUGERÐ
um (14.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast fjórir nýir töluliðir, 61.–64. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/462 frá 2. mars 2023 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/513 frá 8. mars 2023 um breytingu á XV. og XIX. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar tilteknar skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra þaðan sem hafa heimild til að flytja inn kjötafurðir af hóf- og klaufdýrum, alifuglum og veiðifuglum og egg og eggjaafurðir til Sambandsins.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/573 frá 10. mars 2023 um breytingu á V., XIV. og XV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Argentínu, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti og kjötafurðum af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/725 frá 31. mars 2023 um breytingu á V., XIV. og XV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Chile (Síle), Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum og kjötafurðir af hóf- og klaufdýrum, alifugla og veiðifugla til Sambandsins.

 

2. gr.

Framkvæmdarreglugerðir (ESB) 2023/462, (ESB) 2023/513, (ESB) 2023/573 og (ESB) 2023/725 eru birtar í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjöl við auglýsingu nr. 12/2023.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 23. október 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Iðunn María Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 27. október 2023