1. gr.
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skv. 23. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 staðfest eftirfarandi námsbrautarlýsingar. Staðfesting felur í sér að lýsing á uppbyggingu námsbrauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntökuskilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, grunnþáttum og lykilhæfni og námsmati sé í samræmi við aðalnámskrá framhaldsskóla. Hinar staðfestu námsbrautarlýsingar teljast þar með hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla, sbr. auglýsingu nr. 674/2011.
Staðfestingin tekur ekki til einstakra áfangalýsinga heldur lýsingar á uppbyggingu námsbrauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntökuskilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, upplýsingum um grunnþætti, lykilhæfni og námsmat.
Skólar bera ábyrgð á að áfangalýsingar námsbrauta og kennsla falli að hæfniviðmiðum brautar og þeim ramma sem aðalnámskrá setur skólastarfi.
Nánari upplýsingar um námsbrautir má finna á vef ráðuneytisins http://www.menntamalaraduneyti.is/menntamal/framhaldsskolar/stadfestar-namsbrautarlysingar/.
2. gr.
Almenn braut, framhaldsskólapróf – hæfniþrep 2 |
(16-228-2-3) |
|
|
Framhaldsskólabraut, framhaldsskólapróf – hæfniþrep 2 |
(16-213-2-3) |
|
|
Geðhjúkrun sjúkraliða, framhaldsnám heilbrigðisgreina – hæfniþrep 4 |
(16-32-4-11) |
|
|
Handrit og leikstjórn, viðbótarnám við framhaldsskóla – hæfniþrep 4 |
(16-239-4-11) |
|
|
Klassísk tónlistarbraut, önnur lokapróf – hæfniþrep 3 |
(16-227-3-9) |
|
|
Leiklist fyrir kvikmyndir, viðbótarnám við framhaldsskóla – hæfniþrep 4 |
(16-241-4-11) |
Leikstjórn og framleiðsla, viðbótarnám við framhaldsskóla – hæfniþrep 4 |
(16-240-4-11) |
Listmálarabraut, viðbótarnám við framhaldsskóla – hæfniþrep 4 |
(16-200-4-11) |
|
|
Námsbraut netagerðar – netagerðarmaður – hæfniþrep 3 |
(16-181-3-8) |
|
|
Rytmísk tónlistarbraut, önnur lokapróf – hæfniþrep 3 |
(16-225-3-9) |
|
|
Skapandi tækni, viðbótarnám við framhaldsskóla – hæfniþrep 4 |
(16-242-4-11) |
|
|
Tónlistarbraut – klassísk, stúdent – hæfniþrep 3 |
(16-222-3-7) |
Tónlistarbraut – rytmísk, stúdent – hæfniþrep 3 |
(16-223-3-7) |
Tölvuþjónustubraut, framhaldsskólapróf – hæfniþrep 2 |
(16-192-2-3) |
|
|
Öldrunarhjúkrun sjúkraliða, framhaldsnám heilbrigðisgreina – hæfniþrep 4 |
(16-33-4-11) |
3. gr.
Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.
Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 30. desember 2016.
Illugi Gunnarsson.
Karitas H. Gunnarsdóttir.
|