Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 851/2023

Nr. 851/2023 14. ágúst 2023

REGLUGERÐ
um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2023/2024.

1. gr.

Heildaraflaheimildir.

Á fiskveiðiárinu 2023/2024 skal matvælaráðherra úthluta aflamarki af botnfiski og ráðstafa til stuðn­ings byggðarlögum, þannig:

  1. Til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum og/eða vinnslu á botnfiski.
  2. Til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í byggðarlögunum. Heimilt er að ráðstafa aflaheimildum sam­kvæmt þessum lið til allt að þriggja ára í senn.

Byggðarlög, skv. 1. mgr. eru byggðakjarnar sem liggja að sjó og eru háðir veiðum og/eða vinnslu á sjávarafla. Minni byggðarlög teljast byggðarlög með færri íbúum en 2.000, miðað við 1. janúar 2023.

 

2. gr.

Útreikningur á aflaheimildum til byggðarlaga.

Við útreikning á aflaheimildum sem koma í hlut hvers byggðarlags skal leggja til grundvallar eftir­farandi forsendur:

  1. Ráðuneytið skal reikna út aflaheimildir, skv. 1. mgr. 3. gr. sem koma í hlut hvers byggðar­lags þar sem íbúar eru færri en 2.000 þann 1. janúar 2023. Við þann útreikning skal gefa hverju byggðarlagi punkta sem fundnir eru þannig:
    1. Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskafli fiskiskipa hefur mest dregist saman, frá fisk­veiði­árinu 2013/2014 að telja til fiskveiðiársins 2022/2023, sem hlutfall af heildar­botnfiskafla allra byggðarlaga með færri en 2.000 íbúa þann 1. janúar 2023, skal gefa tvo punkta.
    2. Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskaflaheimildir fiskiskipa frá byggðarlagi hafa mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2013/2014 að telja til fiskveiðiársins 2023/2024, sem hlutfall af heildar­botnfiskaflaheimildum allra byggðarlaga með færri en 2.000 íbúa þann 1. janúar 2023, skal gefa tvo punkta.
    3. Fyrir hvert 0,1% sem vinnsla botnfiskafla í byggðarlagi hefur mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2013/2014 að telja til fiskveiðiársins 2022/2023, sem hlutfall af heildar­botnfiskafla sem unninn hefur verið í öllum byggðarlögum með færri en 2.000 íbúa þann 1. janúar 2023, skal gefa fjóra punkta.
    Ráðuneytið metur hvaða viðmiðunarár er hagstæðast hverju byggðarlagi til útreiknings aflaheimilda samkvæmt þessari reglugerð og leggur þar til grundvallar tölulegar upplýsingar frá Fiskistofu. Sama fiskveiðiárið skal ávallt lagt til grundvallar við mat á öllum þáttum fyrir hvert byggðarlag, sbr. 1.-3. tl. 1. mgr., og hafi aukning orðið í einum þætti milli viðmið­unar­ára kemur hún til frádráttar. Samanlagðir punktar vegna samdráttar í einstökum byggðar­lögum ráða því hversu mikið af aflaheimildum kemur í þeirra hlut samkvæmt þessari grein en skulu þó að lágmarki vera 15 þorskígildistonn og að hámarki 275 þorskígildistonn.
    Komi í ljós veruleg breyting á reiknuðum aflaheimildum samkvæmt þessari grein skal ráðuneytið kanna, hvort raunverulegar breytingar hafi orðið á útgerð eða botnfiskvinnslu í viðkomandi byggðarlagi. Hafi svo ekki orðið er heimilt að úthluta aflaheimildum samkvæmt þessari grein til viðkomandi byggðarlaga. Úthlutaðar aflaheimildir til viðkomandi byggðar­laga skulu þó ekki vera hærri en úthlutaðar aflaheimildir á fiskveiðiárinu 2022/2023 að teknu tilliti til breytinga á ráðstöfun skv. 3. mgr. 2. gr. reglugerðar um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2023/2024 og almanaksárið 2024.
  2. Ráðuneytið skal reikna út hve miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags, skv. 2. mgr. 3. gr. Við þann útreikning skal leggja eftirfarandi forsendur til grundvallar:
    Hafi samdráttur í byggðarlagi í vinnslu á rækju, sem veidd er hér við land, verið 400 þorsk­ígildistonn eða minni frá fiskveiðiárinu 2013/2014, 2014/2015, 2015/2016, 2016/2017, 2017/2018, 2018/2019, 2019/2020, 2020/2021 eða 2021/2022 að telja til fiskveiðiársins 2022/2023 koma aflaheimildir, sem nema 65 þorskígildistonnum í þess hlut. Hafi sam­drátturinn í vinnslu verið meiri en 400 þorskígildistonn en minni en 1.500 þorskígildistonn í byggðarlagi koma 130 þorskígildistonn í þess hlut. Hafi samdráttur í vinnslu verið 1.500 þorskígildistonn eða meiri í byggðarlagi koma 195 þorskígildistonn í þess hlut.
  3. Hafi samdráttur í byggðarlagi í vinnslu á skel (hörpudisk og/eða kúfskel), sem veidd er hér við land, verið 400 þorskígildistonn eða minni frá fiskveiðiárinu, 2013/2014, 2014/2015, 2015/2016, 2016/2017, 2017/2018, 2018/2019, 2019/2020, 2020/2021 eða 2021/2022 að telja til fiskveiðiársins 2022/2023 koma aflaheimildir, sem nema 65 þorskígildistonnum í þess hlut. Hafi samdrátturinn í vinnslu verið meiri en 400 þorskígildistonn en minni en 1.500 þorsk­ígildistonn í byggðarlagi koma 130 þorskígildistonn í þess hlut. Hafi samdráttur í vinnslu verið 1.500 þorskígildistonn eða meiri í byggðarlagi koma 195 þorskígildistonn í þess hlut.
  4. Nú sýna útreikningar að aflaheimildir koma einnig í hlut tiltekins byggðarlags samkvæmt A-lið þessarar greinar og skal þá einungis úthluta aflaheimildum til byggðarlags á grundvelli þess ákvæðis sem meira gefur, þ.e. A-liðar eða samtölu B- og C-liðar.
  5. Þegar reiknaður hefur verið út hlutur einstakra byggðarlaga samkvæmt A-lið hér að framan, skal hlutur byggðarlaga með færri íbúa en 400 og sem úthlutað var aflaheimildum á fisk­veiði­árinu 2022/2023, og eiga rétt til úthlutunar fiskveiðiárið 2023/2024, leiðréttur þannig að ekkert þeirra lækki um meira en 15 þorskígildistonn, milli fiskveiðiáranna 2022/2023 og 2023/2024.

 

4. gr.

Tilkynningar um byggðakvóta til sveitarstjórna.

Ráðuneytið tilkynnir sveitarstjórnum hversu miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags sem undir þær falla.

 

5. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi sem sett er skv. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1018/2022, um úthlutun byggðakvóta til byggðar­laga á fiskveiðiárinu 2022/2023.

 

Matvælaráðuneytinu, 14. ágúst 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 14. ágúst 2023