Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 643/2015

Nr. 643/2015 10. júlí 2015

REGLUGERÐ
um fjárhæð, álagningu og innheimtu veiðigjalds fiskveiðiárið 2015/2016.

 

1. gr.

Gjaldskyldir aðilar.

Eigendur íslenskra fiskiskipa sem stunda veiðar á nytjastofnum sjávar skulu greiða veiðigjald fiskveiðiárið 2015/2016, svo sem í reglugerð þessari segir.

Til nytjastofna sjávar samkvæmt lögum þessum teljast sjávardýr, svo og sjávargróður, sem nytjuð eru og kunna að verða nytjuð, hvort sem er innan eða utan íslenskrar fiskveiðilögsögu.

2. gr.

Fjárhæð veiðigjalds.

Veiðigjald hvers nytjastofns, í krónum á hvert kílógramm óslægðs afla, er sem hér segir:

Tegund

Veiðigjald kr.

Tegund

Veiðigjald kr.

Tegund

Veiðigjald kr.

Blágóma

3,75

Langa

8,71

Slétti langhali

3,69

Blálanga

6,51

Langlúra

5,86

Snarphali

2,87

Búrfiskur

34,34

Litla brosma

3,78

Steinbítur

13,27

Djúpkarfi

12,04

Litli karfi

3,37

Stinglax

5,99

Gjölnir

4,24

Loðna

3,54

Stóra brosma

2,77

Grálúða

27,01

Lýsa

6,16

Tindaskata

1,51

Grásleppa

6,04

Makríll

8,37

Túnfiskur

116,22

Gullkarfi

11,02

Náskata

3,74

Ufsi

9,11

Gulllax

5,75

Rækja

1,00

Urrari

4,34

Háfur

8,02

Sandhverfa

50,52

Úthafskarfi

9,20

Hámeri

18,48

Sandkoli

1,09

Ýsa

18,41

Hlýri

15,52

Síld

7,81

Þorskur

13,94

Humar

18,19

Skarkoli

11,80

Þykkvalúra/Sólkoli

22,68

Hvítskata

2,55

Skata

4,22

Öfugkjafta

2,29

Keila

7,06

Skrápflúra

1,43

   

Kolmunni

1,58

Skötuselur

27,55

   

Veiðigjald annarra nytjastofna en í töflunni greinir er 1 kr. á hvert kílógramm óslægðs afla.

Veiðigjald fyrir hval er sem hér segir: Langreyður 50.000 kr. og hrefna 8.000 kr.

3. gr.

Lækkun veiðigjalds og afsláttur frá greiðslu þess.

Hver gjaldskyldur aðili á rétt á því að veittur sé 20% afsláttur af fyrstu 4,5 millj. kr. álagðs veiðigjalds og 15% afsláttur af næstu 4,5 millj. kr. álagningarinnar. Þeir aðilar sem njóta réttar til lækkunar veiðigjalds skv. 2. mgr. eiga ekki rétt á þessum afslætti fyrr en sá réttur er uppurinn og reiknast afsláttur af því veiðigjaldi sem lagt er á eftir þann tíma.

Um rétt til lækkunar veiðigjalds vegna kvótakaupa fer samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II við lög um veiðigjald með þeim breytingum sem hér segir: Hámarkslækkun hvers greiðsluskylds aðila skal nema 50% af rétti hans til lækkunar eins og hann er ákveðinn fyrir sérstakt veiðigjald samkvæmt ákvæðinu. Þá getur rétturinn að hámarki numið helmingi álagðra veiðigjalda hvers almanaksmánaðar. Fiskistofa ákvarðar hámarksrétt hvers greiðsluskylds aðila til lækkunar veiðigjaldsins fyrir upphaf fiskveiðiárs.

4. gr.

Álagning og innheimta veiðigjalds.

Fiskistofa leggur á veiðigjöld. Gjaldskyldir aðilar skulu greiða veiðigjöld fyrir landaðan afla fyrir hvert greiðslutímabil samkvæmt upplýsingum um skráningu afla í aflaskráningarkerfi Fiskistofu. Við álagningu skal leiðrétta fyrir slægingu eða annarri aflanýtingu fyrir löndun ef við á, sbr. 3. mgr. 7. gr. laga um veiðigjald.

Greiðslutímabil veiðigjalda er almanaksmánuður. Gjalddagi veiðigjalda er 1. hvers mánaðar vegna veiða næstsíðasta mánaðar.

Skráður eigandi skips við álagningu veiðigjalds er ábyrgur fyrir greiðslu þess. Ef fleiri en einn eigandi er að skipi bera allir eigendur þess óskipta ábyrgð á greiðslu veiðigjalds og er heimilt að ganga að hverjum þeirra sem er.

Innheimtumenn ríkissjóðs innheimta veiðigjald og fer tollstjóri með samræmingar- og eftirlitshlutverk við innheimtu þess, sbr. 1. mgr. 111. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Sé veiðigjald ekki greitt innan 14 daga frá gjalddaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er. Þá skal Fiskistofa jafnframt fella almennt veiðileyfi hlutaðeigandi skips niður.

Kröfum um greiðslu veiðigjalds fylgir lögveð ríkissjóðs í hlutaðeigandi skipi í fjögur ár frá gjalddaga. Lögveðið nær einnig til dráttarvaxta og innheimtukostnaðar.

Fiskistofa birtir árlega upplýsingar um álagningu veiðigjalds. Upplýsingar um álagningu og innheimtu veiðigjalds á hvern og einn greiðanda eru opinberar upplýsingar sem öllum er heimill aðgangur að.

5. gr.

Gildistími o.fl.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 16. gr. og ákvæði til bráðabirgða II, í lögum nr. 74/2012 um veiðigjöld, með síðari breytingum og lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi og kemur til framkvæmda við álagningu veiðigjalds á fiskveiðiárinu 2015/2016 sem hefst 1. september 2015. Um álagningu og innheimtu veiðigjalda á fiskveiðiárinu 2014/2015 fer þó samkvæmt ákvæðum gildandi laga óbreyttum.

Fyrirmæli reglugerðarinnar gilda fyrir almanaksárið 2016 í tilviki stofna sem stjórnað er með aflamarki sem gefið er út í upphafi árs.

Þrátt fyrir ákvæði 4. gr. skal fyrsta greiðslutímabil veiðigjalds vegna fiskveiðiársins 2015/2016 vera frá 1. september 2015 til 31. desember 2015 og fyrsti gjalddagi 1. febrúar 2016.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. júlí 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Hinrik Greipsson.

Erna Jónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 13. júlí 2015