Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 109/2014

Nr. 109/2014 28. janúar 2014
GJALDSKRÁ
Hitaveitu Fjarðabyggðar.

1. gr.

Hitaveita Fjarðabyggðar selur afnot af heitu vatni úr veitukerfi sínu samkvæmt verðskrá þessari og reglugerð hitaveitunnar fyrir heitt vatn nr. 908/2005. Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru gefin upp án skatts á smásöluverð á heitu vatni og virðisaukaskatts, nema annað sé tekið fram, og leggjast þessir skattar á þau skv. gildandi reglum á hverjum tíma. Virðisaukaskattur á sölu á heitu vatni til hitunar húsa og laugarvatns er 7%.

2. gr.

Ekki er takmarkaður aðgangur húsveitu að heitu vatni umfram það sem leiðir af heimæð og veitukerfi. Hitaveitu Fjarðabyggðar er heimilt að setja upp búnað hjá notanda, sem tryggir aðra notendur gegn óeðlilegum þrýstingsbreytingum og er starfsmönnum veitunnar einum heimilt að breyta stillingu búnaðarins.

3. gr.

Seðilgjald kr. 200 leggst á útsenda prentaða reikninga, en hægt er að komast hjá gjaldinu með því að nýta greiðslukortaþjónustu eða beingreiðslur í banka. Reikningar birtast í heimabönkum þeirra sem nýta sér slíka þjónustu.

4. gr.

Reikninga skal greiða á eindaga. Séu reikningar ekki greiddir á eindaga er send út til­kynn­ing um vanskil. Reikningar eru því næst sendir til innheimtuaðila. Vextir leggjast við skuld­ina sé ekki greitt á eindaga.

5. gr.

Hitaveitugjöld eru krafin mánaðarlega. Áætlunarreikningur sem byggir á fyrri notkun er sendur út ellefu mánuði ársins. Einu sinni á ári er sendur uppgjörsreikningur sem er byggður á álestri og er hann uppgjör á þeim áætlunarreikningum sem sendir hafa verið.

6. gr.

Húseigandi, eða sá sem skráður er fyrir mæli, er ábyrgur fyrir því að tilkynna flutning og er ábyrgur fyrir orkunotkun þar til tilkynning um annan notanda hefur verið móttekin hjá hita­veitunni.

7. gr.

Verð fyrir afnot af heitu vatni er eftirfarandi:

A. Samkvæmt vatnsmæli fyrir hvern rúmmetra vatns:

Grunnverð kr. 152.

B. Mælagjald – fast gjald.

Mælir

Grunnverð kr./dag

kr./ári

15 og 20 mm

69,53

25.380

25 mm

234,14

85.461

32 mm

452,12

165.024

40 mm

920,38

335.940

50 mm

1.775,55

648.075

Um afnot af vatni hitaveitu til annarra nota en húshitunar gilda sérstök gjöld sem ákveðin eru hverju sinni en þó með hliðsjón af gjaldskrá hitaveitunnar.

C. Önnur gjöld:

Umbeðinn aflestur af mælum

1.500 kr. m. vsk.

Lokunargjald

2.000 kr. m. vsk.

Seðilgjald

200 kr. m. vsk.

Skiptigjald

2.500 kr. m. vsk.

Innheimtugjald með vsk. er í höndum innheimtuaðila.

 

8. gr.

Bráðabirgðaheimlagnir.

Stofngjald:

 

Lögn

Grunnverð kr.

20 mm

21.898

25 mm

27.681

32 mm

28.604

  

Lengdargjald:

 

20 mm kr./metra

3.075

25 mm kr./metra

3.934

32 mm kr./metra

3.934

Lengdargjald er greitt fyrir hvern metra í heimlögn sem lögð er til bráðabirgða. Ef bráða­birgða­heimlögn verður síðar notuð sem aðalheimlögn fyrir hús, greiðist ekkert lengdar­gjald vegna bráðabirgðatengingar. Bráðabirgðaheimlagnir skulu aflagðar innan 24 mánaða frá tengingu þeirra.

9. gr.

Aðalheimæðar – heimtaugagjöld:

Stofngjald:

 

Lögn

Inntaksgjald kr.

20 mm

402.943

25 mm

523.824

32 mm

707.162

40 mm

990.027

50 mm

1.435.379

Tengigrind kr.

51.676

Tengigjald kr.

51.676

Tengigrind er ekki innfalin í heimæðargjaldi.

Ef heimlagnagjald stendur ekki undir kostnaði í frágengnu hverfi er heimlagnagjald fyrir nýja eða stækkaða heimlögn greitt samkvæmt kostnaðaráætlun.

Heimæð hitaveitu liggur frá götulögn eða tengibrunni og inn fyrir húsvegg húsveitu að inntaks­loka.

Aukagjald fyrir hvern mæli umfram þann fyrsta skal vera 28.978 kr. með vsk.

10. gr.

Lengdargjald í dreifbýli skal vera samkvæmt kostnaði en lengdargjald í þéttbýli er 8.222 kr. með vsk. og er greitt fyrir hvern metra umfram 20 metra innan lóðamarka.

11. gr.

Önnur atriði til skýringa:

Stærð heimlagnar fer eftir hússtærð og starfsemi sem þar er áætluð. Húseigandi og hönn­uður ákveða stærð heimlagna en hitaveita Fjarðabyggðar ákveður lágmarksstærð heim­lagna fyrir íbúðarhús.

Eigandi íbúðarhúss/fyrirtækis þarf að sækja tímanlega um heimlögn á þar til gerðu eyðu­blaði, hvort sem um er að ræða nýja heimlögn, færslu, breytingu eða stækkun á eldri heim­lögn. Teikningar skulu fylgja umsókn.

Heimlagnargjald skal greitt fyrir hverja heimlögn er tengir húsveitu við kerfi veitunnar. Heimlagnargjald skal greitt áður en vinna við lagningu hefst.

Þegar heimlögn er stækkuð eða þegar heimlögn er breytt samkvæmt beiðni viðskiptavinar, skal greiða fyrir breytinguna samkvæmt samkomulagi og skal tekið mið af raunkostnaði við breytinguna.

Heimilt er að veita afslátt af tengigjöldum ef tengikostnaður er sannanlega lægri en gjald­skrá miðar við.

Heimilt er að leggja álag á tengigjald ef tengikostnaður er sannanlega hærri en gjaldskrá miðar við.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af bæjarráði Fjarðabyggðar, er hér með staðfest sam­kvæmt orkulögum nr. 58 frá 29. apríl 1967, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjald­skrá sama efnis, nr. 1201 frá 7. desember 2011.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. janúar 2014.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild - Útgáfud.: 31. janúar 2014