Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 96/2019

Nr. 96/2019 22. janúar 2019

GJALDSKRÁ
Hitaveitu Flúða.

1. Almennt.

Verðskrá þessi gildir fyrir veitusvæði Hitaveitu Flúða.

Skattur á smásöluverð á heitu vatni samkvæmt lögum um umhverfis- og auðlindaskatta og virðis­auka­skattur samkvæmt gildandi reglum um virðisaukaskatt bætast við gjöld samkvæmt gjald­skrá þessari miðað við gildandi reglur á hverjum tíma.

2. Varmaorka.

2.1 Fast gjald er háð afköstum rennslismælis en óháð töxtum að öðru leyti.

Fast gjald á mæli

kr./dag

Mælastærð DN 15 49,57
Mælastærð DN 20 60,94
Mælastærð DN 25 79,66
Mælastærð DN 32 100,54  
Mælastærð DN 40 119,95  
Mælastærð DN 50 200,19  

Fasta gjaldinu er dreift niður á tímabil reikninga.

2.2 Rúmmetragjald.

Varmaorka er afhent í formi heits vatns sem selt er samkvæmt rúmmetramælingu. Ekki er veittur afsláttur vegna takmörkunar á afhendingu varmaorku og/eða lækkunar á hita vatnsins.

H 1. Almenn heitavatnsnotkun.

Taxtinn gildir fyrir upphitun, almenna heimilisnotkun og snjóbræðslu.

Sala um mæli kr./m³
Rúmmetragjald skv. mælingu 88,69

H 2.

Taxtinn gildir fyrir iðnaðarfyrirtæki og landbúnað.

Atvinnufyrirtæki til framleiðslu 71,22

H 3.

Taxtinn gildir fyrir gróðurhús sem framleiða garðyrkjuafurðir.

Garðyrkja 32,17

H 4. Heimæðagjöld.

Heimæðagjöld skiptast eftir málstærð heimtaugar.

Heimæðagjöld – almenn

kr.

Málstærð DN 20 mm 219.674
Málstærð DN 25 mm 270.539
Málstærð DN 32 mm 406.274
Málstærð DN 40 mm 811.107
Málstærð DN 50 mm 1.346.905   

Heimæðagjöld fyrir stærri inntök en 50 mm skal reikna sérstaklega.

Gjald fyrir hvern lengdarmetra í heimæð, umfram 25 m er 1% af heimæðagjaldi.

Heimæðagjöld á svæðum þar sem ekki er hitaveita fyrir skal reikna sérstaklega.

Heimæðagjöld – sumarhús

kr.

20 mm 531.402
25 mm 950.851

Heimæðagjöld fyrir lengri heimæðar en 25 m skal reikna sérstaklega.

Heimæðagjöld á svæðum þar sem ekki er hitaveita fyrir skal reikna sérstaklega.

Þar sem heimæðagjöld og stofngjöld reiknast sérstaklega greiðast þau þannig að við upphaf verks­ins greiðist 65% af kostnaðaráætlun og 35% greiðist þegar lagningu er lokið.

3. Önnur gjöld og ákvæði.

Gjald fyrir aukaálestur hjá notanda 2.374 kr.
Lokunargjald 4.615 kr.

Við stækkun atvinnuhúsnæðis skal semja sérstaklega um gjald vegna stækkunar á heimtaugum og aukningu á vatnsnotkun.

Þeir sem taka vatn gegnum gróðurhús til upphitunar á pökkunar- og geymsluhúsnæði, skulu greiða fast gjald sem hér segir:

Fyrir hvern m³ húsnæðis á mánuði 33,14 kr.

Gjaldskrá þessi sem samþykkt er í veitustjórn þann 31. október 2018 og af sveitarstjórn Hruna­manna­hrepps 5. nóvember 2018 er hér með staðfest samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum til að öðlast gildi við birtingu. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis, nr. 10/2018.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. janúar 2019.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 30. janúar 2019