Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 456/2017

Nr. 456/2017 30. maí 2017

REGLUGERÐ
um bann við veiðum á háfi, hámeri og beinhákarli.

1. gr.

Háfur, hámeri og beinhákarl eru friðaðar tegundir í fiskveiðilandhelgi Íslands. Allar beinar veiðar á háfi, hámeri eða beinhákarli í fiskveiðilandhelgi Íslands eru þar með óheimilar.

2. gr.

Komi háfur, hámeri eða beinhákarl um borð í veiðiskip sem meðafli skal umsvifalaust sleppa lífvænlegum háfi, hámeri eða beinhákarli.

3. gr.

Afli þessara tegunda skal seldur á viðurkenndum uppboðsmarkaði fyrir sjávarafurðir. Afli sætir álagningu gjalds samkvæmt ákvæðum laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávar­afla, með síðari breytingum. Það skal nema andvirði gjaldskylds afla.

4. gr.

Skipstjóra er skylt að halda afladagbók, sbr. reglugerð nr. 746/2016, um afladagbækur. Skrá skal í afladagbók upplýsingar s.s. um veiðarfæri, veiðistað og veiðidag, um þann háf, hámeri eða bein­hákarl, sem sleppt er í hverju kasti/lögn/togi.

5. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á ákvæðum reglugerðar þessarar skal farið að hætti saka­mála. Brot varða viðurlögum samkvæmt 17. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiði­landhelgi Íslands, með síðari breytingum.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 1. gr. laga nr. 44/1948, um vísindalega verndun fiskimiða landgrunnsins og 9. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, og 14. gr. laga nr. 37/1992 um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. maí 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


B deild - Útgáfud.: 30. maí 2017