Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 691/2019

Nr. 691/2019 18. júlí 2019

AUGLÝSING
um samþykkt á nýju deiliskipulagi í Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt nýja deiliskipulagsáætlun sem hér segir:

Frístundahúsalóðir í landi Miðdals 1.
Um er að ræða nýtt deiliskipulag sem nær yfir 27.700 m² þar sem gert er ráð fyrir fimm lóðum A-D. Heimilt er að reisa einnar hæðar frístundahús með eða án kjallara og einnar hæðar gestahús, samtals 120 m² á lóðum A, B, C og D. Á lóð E er heimilt að reisa samtals 170 m².

Ofangreint deiliskipulag hefur hlotið meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 18. júlí 2019,

Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 19. júlí 2019