Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 238/2014

Nr. 238/2014 21. febrúar 2014
SAMÞYKKT
um stjórn Mosfellsbæjar.

I. KAFLI

Um skipan bæjarstjórnar, sjálfstjórn hennar og verkefni sveitarfélagsins.

1. gr.

Skipan bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar er skipuð níu fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna.

2. gr.

Sjálfstætt stjórnvald.

Mosfellsbær er sjálfstætt stjórnvald, sem er stjórnað af lýðræðislega kjörinni bæjarstjórn í umboði íbúa sveitarfélagsins.

3. gr.

Verkefni sveitarfélagsins.

Mosfellsbær annast þau lögmæltu verkefni sem honum eru falin í lögum, sbr. og leið­beinandi auglýsingu frá ráðuneyti sveitarstjórnarmála.

Mosfellsbær vinnur að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna eftir því sem fært þykir á hverjum tíma.

Mosfellsbæ er heimilt að taka að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa hans, enda sé það ekki falið öðrum að lögum.

II. KAFLI

Um bæjarstjórn.

4. gr.

Hlutverk bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn fer með stjórn sveitarfélagsins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, með síðari breytingum, annarra laga og samþykkt þessari.

Bæjarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna, lántökur og ráðstöfun eigna og um framkvæmd verkefna sveitarfélagsins.

5. gr.

Verkefni bæjarstjórnar.

Meðal verkefna bæjarstjórnar er:

  1. Að sjá um að lögbundnar skyldur séu ræktar og hafa eftirlit með því að fylgt sé við­eig­andi reglum í störfum sveitarfélagsins.
  2. Að kjósa forseta og 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar, sbr. 13. gr. sveitar­stjórnar­laga, bæjarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. V. kafla sveitar­stjórnar­laga, að ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun hjá sveitarfélaginu, sbr. VII. kafla sveitar­stjórnar­laga.
  3. Að setja bæjarstjórn siðareglur, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
  4. Að ákveða stjórnskipan sveitarfélagsins, ráða bæjarstjóra, sbr. 54. gr. sveitar­stjórnar­laga og aðra starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður sveitarfélagsins, sbr. 56. gr. laganna.
  5. Að móta stefnu fyrir starfsemi sveitarfélagsins, deilda og stofnana, setja starfsemi sveitarfélagsins reglur, setja samþykktir og gjaldskrár, eftir því sem lög mæla fyrir um.
  6. Að fara með fjárstjórnarvald sveitarfélagsins, sbr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga og gera fjárhagsáætlanir, sbr. 62. gr. sömu laga.
  7. Að bera ábyrgð á fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja, sbr. 77. gr. sveitarstjórnarlaga og VIII. kafla samþykktar þessarar og taka ákvarðanir um verulegar skuldbindingar sveitarfélagsins til lengri tíma.
  8. Að hafa eftirlit með framkvæmd samstarfsverkefna og þjónustusamninga, sbr. IX. kafla sveitarstjórnarlaga.
  9. Að veita íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess upplýsingar um málefni sem snerta hagi þeirra og um samstarf sem sveitarfélagið hefur við önnur sveitarfélög, sbr. 103. gr. sveitarstjórnarlaga.

6. gr.

Ný bæjarstjórn tekur til starfa.

Nýkjörin bæjarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag. Jafnlengi heldur frá­far­andi bæjarstjórn umboði sínu, með þeim takmörkunum sem leiðir af lögum um kosn­ingar til sveitarstjórna. Nýkjörin bæjarstjórn hefur einungis umboð til töku ákvarð­ana um málefni bæjarstjórnarinnar eða sveitarfélagsins eftir að hún tekur við störfum.

Sá fulltrúi í nýkjörinni bæjarstjórn sem á að baki lengsta setu í bæjarstjórn boðar til fyrsta fundar ekki síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar. Hann stýrir fundi þar til forseti hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar setið jafnlengi í bæjarstjórn fer aldursforseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari málsgrein.

Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.

7. gr.

Kjör forseta og varaforseta.

Á fyrsta fundi kýs bæjarstjórn forseta og 1. og 2. varaforseta til eins árs í senn. Vara­forsetar skulu gegna, í réttri röð, störfum forseta í forföllum hans.

Njóti forseti eða varaforsetar ekki lengur stuðnings bæjarstjórnar skal kjósa í þau embætti að nýju. Hið sama á við ef forseti eða varaforseti forfallast varanlega eða fá lausn frá starfi. Tilkynna skal kosningu forseta og varaforseta til ráðuneytis þegar að því loknu.

Sá telst rétt kjörinn forseti sem fær atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjar­stjórn. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju. Við aðra umferð telst sá rétt kjörinn sem fær meirihluta atkvæða þeirra fulltrúa sem sitja fundinn eða ef við­kom­andi er sá eini sem fær atkvæði. Fáist ekki niðurstaða við aðra umferð skal kosið þriðja sinni en þá á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu við aðra umferð. Ef nauð­syn­legt reynist skal varpa hlutkesti um það milli hverra tveggja verður kosið. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti.

Þegar að lokinni kosningu forseta skal kjósa varaforseta. Kosning varaforseta fer fram með sama hætti og forseta.

Tilkynna skal kjör forseta og varaforseta til ráðuneytis sveitarstjórnarmála þegar að því loknu.

Sé enginn forseta á fundi gegnir aldursforseti störfum forseta nema bæjarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra. Ef forseti deyr eða verður varanlega forfallaður frá störfum skal kjósa forseta í hans stað til loka kjörtímabils forseta.

III. KAFLI

Fundir bæjarstjórnar og fundarsköp.

8. gr.

Fundir bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn heldur reglulega fundi annan hvern miðvikudag sem ekki ber upp á almennan frídag. Bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 16.30. Heimilt er að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi enda taki bæjarstjórn um það ákvörðun.

Haga skal fundum bæjarstjórnar þannig að bæjarstjórnarmenn eigi möguleika á að taka sér orlof árlega.

Aukafundi skal halda í bæjarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati forseta og bæjar­stjóra og skylt er að halda aukafund í bæjarstjórn ef a.m.k. þriðjungur bæjar­fulltrúa krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.

9. gr.

Boðun bæjarstjórnarfunda.

Bæjarstjóri boðar bæjarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað hafi bæjarstjórn ekki gert það. Fundarboð skal berast bæjarstjórnarmönnum ekki síðar en tveimur sólar­hringum fyrir fund. Heimilt er að boða bæjarstjórnarfundi með rafrænum hætti enda eigi kjörnir bæjarstjórnarmenn möguleika á því að nálgast rafrænt fundarboð.

Aukafund skal boða ekki síðar en tveimur virkum dögum eftir að ósk þar um barst þeim er boða skal fund. Fundarboð vegna aukafundar skal berast bæjarstjórnarmönnum svo fljótt sem auðið er og ekki síðar en sólarhring fyrir fund.

Fundarboði skal fylgja dagskrá fundar og þau gögn sem eru nauðsynleg til að bæjar­stjórnar­menn geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind.

10. gr.

Dagskrá bæjarstjórnarfundar.

Bæjarstjóri útbýr dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta og skal dagskráin fylgja fundarboði. Nauðsynleg fylgigögn einstakra erinda sem á dagskrá eru skulu einnig send með sama hætti.

Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar, svo sem kosningu forseta og varaforseta, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarins, svo og ráðningar bæjarstjóra og framkvæmdastjóra sviða.
  2. Fundargerðir bæjarráðs, nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarins, sbr. 41. gr. sveitarstjórnarlaga, svo og fundargerðir byggðasamlaga, samstarfsnefnda og ráða, eins og einstök erindi þeirra bera með sér.
  3. Önnur málefni sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri ákveður að setja á dagskrá. Óski bæjarfulltrúi að fá erindi tekið á dagskrá bæjar­stjórnar­fundar skal hann tilkynna það bæjarstjóra skriflega með tillögu a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.

Dagskrá bæjarstjórnarfundar skal studd öllum nauðsynlegum gögnum sem tengjast þeim erindum sem eru á dagskránni, hvort heldur þau eru á dagskránni ein og sér eða inni í þeim fundargerðum sem á dagskrá eru.

Dagskrá bæjarstjórnarfundar skal vera aðgengileg íbúum bæjarins þegar dagskrá hefur verið samin, svo sem á vef sveitarfélagsins, á auglýsingatöflu bæjarins, í afgreiðslu bæjarins á venjulegum afgreiðslutíma eða með öðrum hætti sem bæjarstjórn ákveður.

11. gr.

Tilkynning til íbúa um fundi bæjarstjórnar.

Í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar tekur bæjarstjórn ákvörðun um hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir, sbr. 8. gr. samþykktar þessarar, og skal sú ákvörðun kynnt íbúum sveitarfélagsins með tryggum hætti.

Íbúum sveitarfélagsins skal kynnt með opinberri auglýsingu eða með auglýsingu á vefsíðu sveitarfélagsins um fyrirhugaða fundi bæjarstjórnar ásamt dagskrá, innan sömu tímafresta og við á um bæjarstjórnarmenn, enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi.

12. gr.

Opnir fundir bæjarstjórnar.

Bæjarstjórnarfundi skal að jafnaði halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir.

Bæjarstjórnarfundur skal haldinn í húsnæði sem fullnægir ákvæðum laga um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerðar um aðgang fatlaðs fólks.

Bæjarstjórn getur ákveðið að einstök erindi verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis erindisins, svo sem viðkvæm einkamál manna eða við­skipta­mál sem æskilegt er vegna hagsmuna bæjarins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur bæjarstjórn ákveðið að bæjarstjórnarfundur þar sem eingöngu er fjallað um slík erindi verði haldinn fyrir luktum dyrum.

Tillaga um að erindi skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í bæjar­stjórn.

Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í bæjarstjórn.

Þrátt fyrir að fundi sé lokað er heimilt að ákveða að tilteknir starfsmenn sveitarfélagsins séu viðstaddir.

Bæjarstjórn getur heimilað einstaklingi utan bæjarstjórnar að taka til máls á bæjar­stjórnar­fundi.

13. gr.

Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.

Bæjarstjórn getur enga ályktun gert nema meira en helmingur bæjarfulltrúa sé við­staddur fundinn.

Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæða­greiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti fellur það en við kosn­ingar ræður hlutkesti.

14. gr.

Tvær umræður í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn afgreiðir erindi að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:

  1. Samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra.
  2. Staðfestingu ársreiknings.
  3. Stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til sveitarfélagsins í heild eða meirihluta þess.
  4. Tillögu um sameiningu við annað sveitarfélag skv. 2. mgr. 120. gr. sveitar­stjórnar­laga.

Þá skal bæjarstjórn hafa tvær umræður, með a.m.k. tveggja vikna millibili, um fjár­hags­áætlanir sveitarfélagsins skv. 62. gr. sveitarstjórnarlaga. Ákvæði þetta gildir þó ekki um samþykkt viðauka við fjárhagsáætlanir.

15. gr.

Fundarsköp og ritun fundargerða.

Fundarsköp.

  1. Fundarstjórn. Forseti stjórnar umræðum á fundum bæjarstjórnar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Hann sér um að fundargerðir séu færðar og að allar tillögur og ályktanir séu rétt og nákvæmlega bókaðar, svo og hverja afgreiðslu þær hljóta.
    Forseti sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum bæjarstjórnar. Hann úrskurðar um skilning á fundarsköpum samkvæmt samþykkt þessari en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar.
  2. Vald forseta. Skylt er bæjarstjórnarmanni að lúta valdi forseta í hvívetna varðandi það að gætt sé góðrar reglu.
    Ef bæjarstjórnarmaður ber aðra menn brigslum eða víkur verulega frá umræðu­efninu skal forseti víta hann. Ef bæjarstjórnarmaður er víttur tvisvar á sama fundi getur forseti lagt til við bæjarstjórn að hann verði sviptur málfrelsi það sem eftir er fundar. Skal sú tillaga afgreidd umræðulaust.
    Ef bæjarstjórnarmaður hlýðnast ekki úrskurði forseta eða almenn óregla kemur upp á fundi skal forseti gera hlé um stundarsakir eða ef nauðsyn krefur fresta eða slíta fundi.
    Ef áheyrandi á sveitarstjórnarfundi raskar fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal.
    Leyfi forseta þarf til að taka myndir í fundarsal bæjarstjórnar.
  3. Afgreiðsla dagskrármála. Erindi skulu tekin til umræðu og afgreidd í þeirri röð sem dagskrá kveður á um nema forseti eða bæjarstjórn ákveði að önnur röð skuli höfð. Heimilt er að taka mál á dagskrá þótt ekki sé þess getið í fundarboði, enda samþykki 2/3 viðstaddra bæjarstjórnarmanna þau afbrigði.
    Erindi er afgreitt í bæjarstjórn með því að samþykkja það, synja því, fresta því, vísa því til umsagnar annarrar nefndar eða starfsmanns, vísa því til endanlegrar afgreiðslu nefndar eða starfsmanns, eða vísa því frá bæjarstjórn. Erindi sem bæjarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra, né verður afgreiðslu erindis frestað sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma.
    Erindi sem einungis er til upplýsingar eða kynningar og þarfnast ekki efnislegrar niðurstöðu eru lögð fram.
    Fundargerðir eru ekki lagðar fram til afgreiðslu sem slíkar, heldur skal taka afstöðu til hvers og eins erindis sem þær hafa að geyma, sbr. ofanskráð, og niðurstaðan skráð við erindið sjálft.
  4. Málfrelsi bæjarstjóra. Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í bæjarstjórn.
  5. Málfrelsi. Bæjarstjórnarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar.
    Bæjarstjórnarmaður sem taka vill til máls skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu bæjarfulltrúar taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða bæjarstjóra, framsögumann í máli eða bæjarstjórnarmann sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri.
    Hafi tveir eða fleiri bæjarstjórnarmenn kvatt sér hljóðs samtímis ákveður forseti í hvaða röð þeir skuli tala. Bæjarstjórnarmaður skal flytja mál sitt úr sæti sínu. Forseti getur þó ákveðið í upphafi fundar að talað skuli úr ræðustól.
  6. Ávarp ræðumanns. Bæjarstjórnarmaður skal beina máli sínu til forseta.
    Þegar til umræðu eru fundargerðir bæjarráðs, annarra nefnda, ráða eða stjórna skal bæjarfulltrúi taka fram hvaða dagskrárlið fundargerðarinnar hann óskar að ræða.
    Ekki má bæjarstjórnarmaður lesa upp prentað mál við umræður í bæjarstjórn nema með leyfi forseta.
  7. Hve oft má tala. Bæjarstjórnarmaður má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó bæjarstjórnarmanni að taka oftar til máls, til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn forseta. Framkvæmdastjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls. Framkvæmdastjóri hefur óbundið málfrelsi.
  8. Ræðutími. Telji forseti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers bæjarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um erindi verði lokið þá þegar. Hver bæjarfulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur.
    Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um erindi svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir ef einhver bæjarfulltrúi kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.
  9. Tillögur og afgreiðsla. Bæjarstjórnarmaður getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það erindi sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar ef forseti óskar. Forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu. Bæjarstjórnarmaður getur borið fram fyrirspurn til bæjarstjóra um hvert það dagskrármál sem til umræðu er á fundi og er bæjarstjóra skylt að veita svör við þeim að fremsta megni. Sé fyrirspurn borin fram skriflega er bæjarstjóri þó ekki skyldur að svara henni fyrr en á næsta reglulega fundi sé þess kostur og eru þá fyrirspurnin og svörin færð til bókar á þeim fundi.
  10. Réttur til bókunar. Þeir sem hafa rétt til að taka þátt í umræðum í bæjarstjórn eiga rétt á að fá bókaðar í fundargerð stuttar athugasemdir um afstöðu til þeirra mála sem til umræðu eru.
  11. Atkvæðagreiðsla. Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og móti því fellur það, en við kosningar ræður hlutkesti. Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Bæjarstjórnarmaður greiðir atkvæði úr sæti sínu. Forseti biður þá bæjarstjórnarmenn sem samþykkja mál að rétta upp hönd. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.
    Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.
    Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur fulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarstjórnarmanna í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða bæjarstjórnarmaður greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjar­stjórnar­maður, þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða á móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.
    Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef bæjarstjórnarmaður óskar og bæjarstjórn samþykkir.
  12. Kosningar. Kosningar sem fara fram í bæjarstjórn skulu vera hlutfallskosningar skv. d’Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við forsetakjör.

Ritun fundargerða.

  1. Ritun fundargerða. Bæjarstjórn getur ráðið fundarritara utan bæjarstjórnar til að annast ritun fundargerða í gerðabók bæjarstjórnar eða falið starfsmanni ritun funda. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau dagskrármál sem tekin eru fyrir, heiti þeirra og skjala­númer, og hvernig afgreiðslu þau hljóta, sbr. staflið c hér að ofan. Sé erindi ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Erindi sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál.
    Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og skulu allir viðstaddir fundarmenn undirrita hana nema bæjarstjórn ákveði annað.
    Bæjarstjórn getur ákveðið að fundargerðir verði skráðar rafrænt. Verði það gert skal bóka í gerðabók bæjarstjórnar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð rafrænt. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Viðstaddir bæjarfulltrúar, og eftir atvikum ritari, skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabókina. Í lok fundarins skal rafræn fundargerð prentuð út og hún undirrituð að viðstöddum bæjarfulltrúum, og eftir atvikum ritara. Einnig skal forseti og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu.
    Bæjarfulltrúi sem gera vill athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undir­ritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði.
    Bæjarstjórn getur ákveðið að umræður á bæjarstjórnarfundi verði hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti, þeim útvarpað gegnum ljósvakamiðla og/eða netmiðla. Verði það ákveðið skal bæjarstjórn setja um það nánari reglur.
    Um ritun fundargerða sveitarstjórnar vísast að öðru leyti til auglýsingar innan­ríkis­ráðuneytisins um leiðbeiningar um ritun fundargerða sveitarstjórna nr. 22/2013.

16. gr.

Hæfi til þátttöku í meðferð og afgreiðslu einstakra mála.

Bæjarfulltrúa ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu erindis þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Viðkomandi telst þó aðeins vanhæfur sé hann eða hafi verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að einum lið til hliðar.

Bæjarfulltrúar eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum bæjarstjórnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.

Bæjarfulltrúar sem jafnframt eru starfsmenn bæjarins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið erindi sem lagt er fyrir bæjarstjórn eru alltaf vanhæfir þegar bæjarstjórn fjallar um erindið. Þetta á þó hvorki við um bæjarstjóra né þegar bæjarstjórn fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga bæjarins.

Bæjarfulltrúa sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli bæjarstjórnar á því. Bæjarfulltrúa er heimilt við meðferð erindis sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Bæjarstjórn sker umræðulaust úr um hvort erindi er svo vaxið að einhver bæjarfulltrúa sé vanhæfur. Bæjarfulltrúi sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.

Bæjarfulltrúi sem vanhæfur er við úrlausn erindis skal ekki taka með neinum hætti þátt í umfjöllun málsins og yfirgefa fundarsali bæjarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess.

17. gr.

Varamenn í bæjarstjórn.

Varamenn taka sæti í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast. Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um mis­munandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast. Tilkynning um slíkt sam­komu­lag skal lögð fram í upphafi kjörtímabils og gildir hún til loka þess.

IV. KAFLI

Réttindi og skyldur bæjarstjórnarmanna.

18. gr.

Skyldur bæjarstjórnarmanna.

Bæjarfulltrúa er skylt að sækja alla bæjarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi.

Sé bæjarfulltrúi forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til bæjarstjóra og láta boða varamann í sinn stað sem þá situr allan fundinn, jafnframt því að hann komi sjálfur boðum til varamanns um forföll sín.

Aðal- og varamönnum í bæjarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins, sem og til annarra trúnaðarstarfa á vegum sveitarfélagsins. Sá sem verið hefur forseti heilt kjörtímabil eða lengur eða gegnt ákveðnu starfi innan bæjarstjórnar jafnlangan tíma eða lengur getur skorast undan kosningu til þess starfs jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið með höndum. Ósk um undanþágu skal sett fram áður en kjör í viðkomandi nefnd eða trúnaðarstarf fer fram.

Hverjum bæjarstjórnarmanni er skylt að inna af hendi störf sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnarinnar.

Bæjarfulltrúa ber að gegna störfum sínum í bæjarstjórn af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna bæjarins.

Bæjarstjórnarmaður skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að bæjarstjórnarmaður lætur af þeim störfum.

19. gr.

Réttur bæjarstjórnarmanna.

Bæjarstjórnarmenn eru sjálfstæðir í störfum sínum. Þeir eru einungis bundnir af lögum og eigin sannfæringu um afstöðu til einstakra mála.

Bæjarstjórnarmaður á rétt á að tekið verði á dagskrá bæjarstjórnarfundar hvert það málefni sem sérstaklega varðar hagsmuni sveitarfélagsins eða verkefni þess.

Mál sem ekki er tilgreint á boðaðri dagskrá bæjarstjórnarfundar verður þó ekki tekið til afgreiðslu á viðkomandi fundi án samþykkis 2/3 hluta fundarmanna.

Bæjarstjórnarmenn hafa málfrelsi á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í fundarsköpum bæjarstjórnar. Þeir hafa tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjar­stjórnar.

Bæjarstjórnarmönnum er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök dag­skrár­mál. Þegar um er að ræða erindi sem bæjarstjórn er að lögum skylt að afgreiða, svo sem fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir getur forseti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur bæjarfulltrúa tekur þátt í atkvæðagreiðslunni.

Vilji bæjarstjórnarmaður ekki una úrskurði forseta um stjórn fundar og fundarsköp getur hann skotið úrskurðinum til bæjarstjórnar sem sker úr án umræðna.

20. gr.

Aðgangur að gögnum og þagnarskylda.

Bæjarstjórnarmaður á aðgang að bókum og skjölum bæjarins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum hans á afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna.

Óski bæjarfulltrúi upplýsinga sem fela það í sér að taka þurfi saman gögn skal hann snúa sér til bæjarstjóra með slíka ósk sem verða skal við beiðninni svo fljótt sem unnt er.

Bæjarstjórnarmenn skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

21. gr.

Siðareglur og góðir starfshættir.

Bæjarstjórnarmaður skal í störfum sínum fara eftir þeim siðareglum sem bæjarstjórn hefur sett sér, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.

22. gr.

Lausn frá störfum.

Nú telur bæjarstjórnarmaður sig ekki geta gegnt skyldum sínum í bæjarstjórn án óhæfi­legs álags og getur bæjarstjórnin þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 21. gr. sveitarstjórnarlaga.

Þegar bæjarstjórnarmaður flytur úr sveitarfélaginu um stundarsakir má bæjarstjórn ákveða, að ósk hans, að hann skuli víkja úr bæjarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í sveitarfélaginu. Slík ákvörðun skal tekin áður en bæjarstjórnarmaður flytur um stundar­sakir. Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein missir bæjar­stjórnar­maður kjörgengi við skráningu lögheimilis í öðru sveitarfélagi.

Nú er bæjarfulltrúi af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta og skal bæjarstjórn þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

23. gr.

Boðun varamanna.

Þegar aðalmaður er vanhæfur til meðferðar máls í bæjarstjórn skal boða varamann hans til meðferðar þess og afgreiðslu. Að afgreiðslu máls lokinni tekur aðalmaður sæti sitt á viðkomandi fundi á ný. Verði innköllun varamanns ekki við komið getur vanhæfur bæjarstjórnarmaður krafist þess að umræðu og afgreiðslu máls verði frestað til næsta fundar. Frestun nær þó ekki fram að ganga ef 2/3 hlutar viðstaddra bæjarstjórnarfulltrúa greiða atkvæði gegn frestun eða ef frestun hefur í för með sér að gengið sé gegn lögbundnum afgreiðslutíma máls.

Þegar aðalmaður getur ekki mætt til fundar eða þarf að víkja af fundi af heilsu­fars­ástæðum eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum tekur varamaður hans sæti í bæjar­stjórn á þeim fundi. Aðalmaður skal tilkynna forföll til fundarboðanda skv. sam­þykkt þessari, eins fljótt og auðið er og óska eftir því að varamaður verði boðaður, jafn­framt því að hann komi sjálfur boðum til varamanns um forföll sín. Forföll samkvæmt þessari málsgrein taka ávallt til viðkomandi fundar í heild, eða til loka fundar sé um það að ræða.

Þegar fyrirséð er að aðalmaður í bæjarstjórn mun taka hlé frá störfum vegna atvika sem greinir í 2. mgr. í a.m.k. einn mánuð skal varamaður hans taka sæti í bæjarstjórninni frá og með næsta fundi, enda séu þá ástæður forfalla enn til staðar. Þegar forföllum lýkur tekur aðalmaður sæti sitt að nýju frá og með næsta fundi.

Þegar aðalmaður fellur frá, missir kjörgengi eða fær lausn frá starfi í bæjarstjórn skal varamaður hans taka sæti í bæjarstjórn frá og með næsta fundi.

24. gr.

Þóknun o.fl.

Bæjarstjórnarmaður skal fá hæfilega þóknun úr bæjarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn.

Takist bæjarfulltrúi á hendur ferð á vegum bæjarins samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.

Bæjarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.

Bæjarstjórnarmaður má ekki afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar greinar.

25. gr.

Réttindi og skyldur varamanna.

Ákvæði þessa kafla, um réttindi og skyldur bæjarstjórnarmanna, eiga einnig við um vara­menn þegar þeir taka sæti í bæjarstjórn.

V. KAFLI

Bæjarráð.

26. gr.

Kosning bæjarráðs.

Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa úr hópi aðalmanna í bæjarstjórn þrjá fulltrúa í bæjarráð til eins árs og formann og varaformann ráðsins. Aðal- og varafulltrúar sem kosningu hafa hlotið af sama framboðslista og hinn kjörni bæjarráðsmaður eru varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann. Hafi fulltrúi í bæjarráði verið kjörinn til setu í bæjarstjórn í óbundinni kosningu skal þó fara fram kjör á varamanni hans meðal aðal- og varamanna í bæjarstjórn.

Um þóknun til aðal- og varamanna í bæjarráði vísast til 3. mgr. 24. gr. samþykktar þessarar.

Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráð.

27. gr.

Fundartími bæjarráðs.

Bæjarráð skal að jafnaði halda fund einu sinni í viku á fimmtudögum.

Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjar­ráðs­menn óska þess.

28. gr.

Boðun funda bæjarráðs.

Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi í samráði við formann bæjarráðs. Hann skal hafa sent bæjarfulltrúum dagskrá bæjarráðsfundar í fundarboði ásamt nauðsynlegum gögnum þannig að fundarboðið berist þeim í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir bæjar­ráðs­fund.

Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund skal hann tilkynna bæjarstjóra um forföll og óska eftir því að varamaður verði boðaður, jafnframt því að hann komi sjálfur boðum til vara­manns um forföll sín.

29. gr.

Stjórnun bæjarráðs.

Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarráðs. Heimilt er að taka erindi til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá, enda samþykki meirihluti bæjarráðsmanna það. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks erindis ef einhver bæjarráðsmanna eða áheyrnarfulltrúi óskar þess.

Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs eða falið starfsmanni ritun funda. Um ritun fundargerða bæjarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjar­stjórnar, sbr. 15. gr.

30. gr.

Áheyrnarfulltrúar í bæjarráði.

Heimilt er framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki hefur náð kjöri í bæjarráð að tilnefna áheyrnarfulltrúa og varaáheyrnarfulltrúa til setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt. Áheyrnarfulltrúinn skal eiga rétt til nefndarlauna til jafns við bæjarráðsmenn.

Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi í bæjarráði skulu vera aðalmenn í bæjarstjórn, sbr. 3. mgr. 50. gr. sveitarstjórnarlaga.

31. gr.

Verkefni bæjarráðs og heimildir til fullnaðarafgreiðslu.

Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn bæjarins, fjármálastjórn og starfsmannastjórn að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin.

Bæjarráð hefur umsjón með stjórnsýslu bæjarins, þar undir m.a. atvinnumál, lóða­úthlutanir, ráðstöfun leigulóða bæjarins og stefnumótun allt að svo miklu leyti sem þessi mál eru ekki fengin öðrum að ákvörðun bæjarstjórnar. Bæjarráð er veitustjórn, hefur umsjón með undirbúningi og eftirliti framkvæmda, undirbúningi árlegrar fjárhags­áætlunar, semur drög að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, stofnana hans og fyrir­tækja að fengnum tillögum framkvæmdastjóra sviða og umsögnum hlutaðeigandi nefnda og stjórna og leggur þau fyrir bæjarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Þá sér bæjarráð um að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum stofnana og fyrirtækja bæjarins lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu svo sem sveitar­stjórnar­lög mæla fyrir um.

Stjórnsýsla Mosfellsbæjar leggur bæjarráði og nefndum og ráðum bæjarins til starfsmenn sem starfa með nefndunum s.s. við undirbúning funda, ritun þeirra og frágang fundar­gerða.

Bæjarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra erinda sem það fær til meðferðar.

Bæjarráði er þó heimil fullnaðarafgreiðsla erinda sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans enda sé ekki ágreiningur milli bæjarráðsmanna eða við bæjarstjóra um slíka afgreiðslu. Bæjarráð ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka samkvæmt fjárhagsáætlun, svo sem til gatnagerðar, ný­bygg­inga og óvissra útgjalda að svo miklu leyti sem ráðstöfun þess er ekki ákveðin af bæjarstjórn.

Skylt er starfsmönnum bæjarins að sitja fundi bæjarráðs ef þess er óskað.

Meðan bæjarstjórn er í sumarleyfi fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella.

32. gr.

Heimild bæjarráðs til fullnaðarákvörðunar.

Bæjarráð úrskurðar um heimild til endurupptöku mála sem hljóta afgreiðslu samkvæmt þessari grein með hliðsjón af 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

VI. KAFLI

Fastanefndir, ráð og stjórnir aðrar en bæjarráð.

33. gr.

Kosning í fastanefndir og kjörtímabil.

Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndir eftir því sem fyrir er mælt í lögum og samþykkt þessari. Slíkar nefndir teljast fastanefndir bæjarstjórnar.

Kjörtímabil fastanefnda er hið sama og bæjarstjórnar, nema annað leiði af lögum eða samþykkt þessari.

Að loknum bæjarstjórnarkosningum halda fastanefndir þó umboði sínu þar til nýkjörin bæjarstjórn hefur kjörið nýja nefnd í þeirra stað en með sömu takmörkunum vald­heimilda og fyrri bæjarstjórn sætti að afloknum kosningum, sbr. 12. gr. og 2. mgr. 37. gr. sveitarstjórnarlaga.

34. gr.

Kosning og kjörgengi.

Kosningar í fastanefndir bæjarstjórnar, nefndir fyrir hluta sveitarfélagsins, nefndir til að fara með einstök verkefni eða málaflokka og aðrar nefndir og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef þess er óskað. Fram­kvæmd kosninga skal þá vera í samræmi við ákvæði 44. og 45. gr. sveitar­stjórnar­laga.

Ef ekki er kosið hlutfallskosningu til nefndar, sbr. 1. mgr. 43. gr., sveitarstjórnarlaga, skal bæjarstjórn gæta þess að fullnægja kröfum um kynjahlutfall skv. 2. tölul. 44. gr. laganna við skipun í viðkomandi nefnd.

Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir sem hafa kosningarrétt í sveitarfélaginu, nema annað leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga.

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá. Bæjarstjórn getur þó ákveðið að víkja frá þessu ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starfið er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum vegna nefndar­setu.

35. gr.

Valdsvið nefnda og framsal bæjarstjórnar til fastanefnda
og starfsmanna á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála og endurupptaka.

Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarins og aðkomu starfs­manna að starfi þeirra, fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða sam­þykktum um nefndir sem bæjarstjórn setur þeim.

Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð getur bæjarstjórn ákveðið að fela nefnd, ráði eða stjórn á vegum Mosfellsbæjar fullnaðarafgreiðslu erinda sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs nema lög eða eðli máls mæli sérstaklega gegn því.

Á sama hátt og með sömu skilyrðum og getur í 2. mgr. er bæjarstjórn heimilt að fela öðrum aðilum innan stjórnsýslu Mosfellsbæjar fullnaðarafgreiðslu erinda.

Bæjarstjórn, bæjarráð eða hlutaðeigandi nefnd skal hafa eftirlit með afgreiðslu erinda samkvæmt þessari málsgrein og kalla eftir reglulegum skýrslum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli hennar.

Sá aðili sem fengið hefur framselt vald til fullnaðarafgreiðslu skv. 2. og 3. mgr., eða þriðjungur fulltrúa ef um nefnd, ráð eða stjórn er að ræða, sbr. 2. mgr., getur ávallt óskað eftir því að bæjarstjórn, bæjarráð eða viðkomandi nefnd samkvæmt samþykkt þessari taki ákvörðun um erindi.

Að uppgefnum skilyrðum 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, um endurpptöku, á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið fyrir á ný. Beiðni um endurupptöku skal beint til bæjarrráðs.

36. gr.

Afgreiðsla á fundargerðum.

Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna bæjarins skulu teknar á dagskrá bæjarstjórnar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum nefndarfundi.

Bæjarstjórn, skal í samræmi við ákvæði 15. gr., stafliðar c, taka afstöðu til einstakra erinda í þeim fundargerðum sem hún tekur á dagskrá.

Hafi ályktun nefndar, ráðs eða stjórnar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir eða hún útheimtir verulega vinnu fyrir starfsmenn bæjarins sem ekki er gert ráð fyrir í starfsáætlun ársins skal ályktunin ætíð lögð fyrir bæjarráð áður en hún er lögð fyrir bæjarstjórn.

37. gr.

Fundir nefnda og ályktunarhæfi.

Fundir nefnda skulu almennt haldnir fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn bæjarins. Nefnd er heimilt að opna fundi sína komi fram ósk um slíkt svo fremi sem lög eða eðli máls hamli því ekki og skal bæjarstjórn setja reglur þar um.

Um fundi nefnda, boðun þeirra, ályktunarhæfi og atkvæðagreiðslur gilda ákvæði III. kafla samþykktar þessarar og sveitarstjórnarlaga eftir því sem við getur átt.

38. gr.

Fundarstjórn og fundargerðir.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði III. kafla samþykktar þessarar gilda um með­ferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.

Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Nefnd getur ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða, nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 15. gr., í samþykkt þessari.

39. gr.

Varamenn.

Varamenn taka sæti í nefndum í þeirri röð sem þeir eru kosnir.

Þegar kosið er til nefndar hlutbundinni listakosningu eða listi hefur verið sjálfkjörinn og aðalmaður í nefnd er forfallaður taka varamenn þess lista sem aðalmaður er kjörinn af sæti í nefnd í þeirri röð sem þeir skipa listann eftir að endurröðun á hann hefur farið fram skv. 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga.

Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar til bæjarstjórnar leggja í sameiningu fram tillögu að lista við hlutbundna kosningu í nefnd bæjarstjórnar geta þeir komið sér saman um að varamenn á listanum vegna nefndarkosningarinnar, sem eru þar fulltrúar sama flokks eða framboðslista og sá aðalmaður í nefnd sem um ræðir, taki sæti hans í nefndinni í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi varamanna viðkomandi lista í sama flokki eða tilheyri sama framboðslista og aðalmaður tilheyrði þegar kosning í nefnd fór fram taka vara­menn af listanum sæti eftir venjulegum reglum.

Yfirlýsingu um samkomulag skv. 3. mgr. skal leggja fram á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir að nefndarkosning fór fram og gildir hún til loka kjörtímabils eða þar til kjörið er í nefnd að nýju.

40. gr.

Boðun varamanna.

Um boðun varamanna á nefndarfundi gilda ákvæði 23. gr. samþykktar þessarar eftir því sem við á.

Þegar aðalmaður í nefnd fellur frá, missir kjörgengi, fær lausn frá nefndarstarfi eða forfallast varanlega frá því að sitja í nefnd tekur varamaður hans sæti í nefndinni nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju, ella skipar bæjarstjórn nýjan varamann til setu í nefndinni.

Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar um varamenn taka einnig til varaáheyrnarfulltrúa eftir því sem við getur átt.

41. gr.

Lausn frá nefndarsetu og endurskipun.

Fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins, sem ekki eru aðal- eða vara­menn í bæjarstjórn, er heimilt að segja af sér nefndastörfum hvenær sem er á kjör­tímabili. Aðrir fulltrúar geta óskað eftir því við bæjarstjórn að þeim verði veitt lausn tíma­bundið eða út kjörtímabilið og metur hún þá hvort skilyrði til þess séu fyrir hendi.

Bæjarstjórn getur hvenær sem er á kjörtímabili ákveðið að skipta um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sem hún kýs eða skipar ef ekki er um það ágreiningur innan bæjar­stjórnar eða málefnalegar ástæður mæla með slíkri breytingu, svo sem ef nefndar­maður, án lögmætra forfalla, mætir ekki á fundi nefndar eða brýtur gegn þagnar­skyldu. Ennfremur getur bæjarstjórnarmaður krafist þess að nefnd verði endur­skipuð telji hann ástæðu til. Bæjarstjórn er þó heimilt að hafna slíkri beiðni ef hún er bersýni­lega tilefnislaus að því tilskildu að 2/3 fundarmanna greiði atkvæði með tillögu um höfnun. Við framangreindar breytingar á skipan fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitar­félagsins skal kjósa alla fulltrúa að nýju og fer þá um kjör þeirra skv. 1. mgr. 43. gr. sveitar­stjórnar­laga nema enginn ágreiningur sé innan bæjarstjórnar um breyt­ing­arnar.

Breytingar á nefndaskipan samkvæmt þessari grein skulu fullnægja skilyrðum 2. tölul. 44. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga um kynjahlutföll.

42. gr.

Áheyrnarfulltrúar.

Heimilt er bæjarstjórn að ákveða að framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki hefur fengið kjörinn nefndarmann í nefnd, sbr. B. lið 46. greinar, sé heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa og varaáheyrnarfulltrúa til setu í viðkomandi nefnd með málfrelsi og tillögurétt. Áheyrnarfulltrúi skv. þessari málsgrein á ekki rétt til nefndarlauna.

Um áheyrnarfulltrúa á fundum nefnda gilda sömu þagnarskylduákvæði laga og eiga við um aðra nefndarmenn. Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi skulu fullnægja kjör­gengis­skilyrðum í viðkomandi nefnd.

43. gr.

Þóknun.

Bæjarstjórn er skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélagsins hæfilega þóknun fyrir þau störf, samkvæmt mati bæjarstjórnar, í samræmi við reglur sem hún setur.

Bæjarstjórn er með sama hætti heimilt að ákveða að greiða áheyrnarfulltrúum þóknun fyrir störf þeirra í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélagsins.

44. gr.

Önnur réttindi og skyldur.

Nefndarmönnum er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um stundarsakir skal hann sjá til þess að varamaður hans taki sæti í nefndinni. Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr bænum, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju.

Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um nefndarkosningar skal sá sem tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 4. mgr. 21. gr. sveitarstjórnarlaga.

Ákvæði III. og IV. kafla samþykktar þessarar gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á. Réttindi takmarkast þó eftir eðli máls við það sem fulltrúum er þörf á vegna starfa í viðkomandi nefnd.

45. gr.

Aðrar nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að.

Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að samkvæmt viðkomandi lögum eða samþykktum. Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar eiga við um slíka fulltrúa eftir því sem við getur átt.

Að því leyti sem nefnd, ráð eða stjórn lögaðila, sem bæjarstjórn kýs fulltrúa til skv. 1. mgr., fer með framkvæmd eða ábyrgð á verkefni sem sveitarfélaginu væri ekki sjálfu heimilt að sinna, þá er fulltrúi sveitarfélagsins í viðkomandi nefnd, ráði eða stjórn ekki bundinn af fyrirmælum bæjarstjórnarinnar um þau störf. Hið sama á við að því leyti sem það leiðir af lögum sem gilda um rekstur og starfsemi viðkomandi lögaðila.

46. gr.

Fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að.

Bæjarstjórn kýs í eftirtaldar nefndir, ráð og stjórnir:

A. Til eins árs. Á fundi í júní ár hvert:

  1. Bæjarráð. Þrír aðalmenn úr hópi aðalmanna í bæjarstjórn skv. 35. gr. sveitar­stjórnarlaga nr. 138/2011 og formaður og varaformaður ráðsins. Aðal- og vara­fulltrúar sem kosningu hafa hlotið af sama framboðslista og hinn kjörni bæjar­ráðs­maður verða sjálfkrafa varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann. Hafi kjörinn bæjarráðsmaður verið kjörinn bæjarfulltrúi í óbundinni kosn­ingu skal varamaður hans kosinn úr hópi aðal- og varamanna í bæjarstjórn, sbr. 26. gr. samþykktar þessarar.

B. Til fjögurra ára. Eftirtaldar fastanefndir á vegum Mosfellsbæjar.

Á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum:

  1. Fjölskyldunefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann nefndarinnar. Nefndin fer með félagsmál og húsnæðismál eftir því sem kveðið er á um í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, lögum um húsnæðismál nr. 44/1998 og í samþykkt bæjarstjórnar um nefndina. Nefndin fer með verkefni barnaverndarnefndar samkvæmt barnaverndarlögum nr. 80/2002. Jafnframt fer nefndin með jafnréttismál eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008.
  2. Fræðslunefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann nefndarinnar. Fræðslunefnd fer með fræðslumál eftir því sem nánar er kveðið á um í samþykkt bæjarstjórnar um nefndina. Nefndin fer með verkefni skólanefndar samkvæmt lögum um grunnskóla nr. 91/2008 og verkefni leik­skóla­nefndar samkvæmt lögum um leikskóla nr. 90/2008. Nefndin fer enn­fremur með málefni Listaskóla Mosfellsbæjar, þar undir tónlistardeildar skólans sam­kvæmt lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985.
  3. Íþrótta- og tómstundanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann nefndarinnar. Nefndin fer með íþrótta- og tóm­stunda­mál eftir því sem nánar er kveðið á um í samþykkt bæjarstjórnar um nefnd­ina.
  4. Menningarmálanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann nefndarinnar. Menningarmálanefnd fer með menn­ingar­mál eftir því sem nánar er kveðið á um í samþykkt bæjarstjórnar um nefnd­ina. Nefndin fer með málefni Bókasafns Mosfellsbæjar, sbr. bókasafnalög nr. 150/2012. Nefndin er bæjarstjórn til ráðuneytis um verndun gamalla húsa og fornra minja samkvæmt lögum um Þjóðminjasafn Íslands nr. 140/2011. Nefndin fer með vinabæjarsamskipti, málefni félagsheimilisins Hlégarðs, hefur umsjón með listaverkaeign bæjarins og fer með málefni Lista- og menningarsjóðs bæjar­ins.
  5. Skipulagsnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann nefndarinnar. Nefndin fer með skipulagsmál samkvæmt ákvæð­um skipulagslaga nr. 123/2010 og önnur verkefni eftir því sem nánar er kveðið á um í samþykkt bæjarstjórnar um nefndina. Nefndin fer með verkefni umferðar­nefndar samkvæmt umferðarlögum nr. 50/1987.
  6. Umhverfisnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann nefndarinnar. Nefndin fer með umhverfismál eftir því sem nánar er kveðið á um í samþykkt bæjarstjórnar um nefndina. Hún fer með verkefni náttúruverndarnefndar samkvæmt lögum um náttúruvernd nr. 44/1999 og verkefni gróðurverndarnefndar samkvæmt lögum um landgræðslu nr. 17/1965. Nefndin hefur eftirlit með fjallskila- og afréttarmálum.
  7. Ungmennaráð. Níu aðalmenn og jafnmargir til vara tilnefndir af eldri deildum grunnskólanna og Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ. Ungmennaráð kýs sér sjálft formann og varaformann þess. Ungmennaráð fer með málefni ungmenna eftir því sem nánar er kveðið á um í samþykkt bæjarstjórnar fyrir ungmennaráð.
  8. Þróunar- og ferðamálanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann nefndarinnar. Nefndin fer með þróunar- og ferðamál eftir því sem nánar er kveðið á um í samþykkt bæjarstjórnar um nefndina.
  9. Yfirkjörstjórn og kjörstjórnir. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og skv. 10. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 og á sama hátt þrír aðalmenn og jafnmargir til vara í kjör­stjórnir fyrir hverja kjördeild. Yfirkjörstjórn kýs sér sjálf formann og vara­formann. Yfirkjörstjórn ákveður skipan formanns og varaformanns undir­kjörstjórna.

C. Til fjögurra ára. Eftirtaldar samstarfsnefndir og ráð.

Á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum.

  1. Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara í sameiginlega almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins, þ.e. Hafnarfjarðar­kaupstaðar, Garðabæjar, Kópavogsbæjar, Seltjarnarnesbæjar, Reykjavíkur­borgar, Mosfellsbæjar og Kjósarhrepps samkvæmt samkomulagi sveitar­félag­anna þar um og staðfestingu innanríkisráðuneytisins.
  2. Búfjáreftirlitsnefnd. Einn aðalmaður til setu í sameiginlegri búfjáreftirlitsnefnd Reykjavíkurborgar, Seltjarnarnesbæjar, Mosfellsbæjar og Kjósarhrepps og annan til vara skv. lögum um búfjárhald nr. 38/2013.
  3. Fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands. Einn aðalmaður og annar til vara skv. 9. gr. laga um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands nr. 68/1994.
  4. Fulltrúaráð Eirar. Þrír aðalmenn og þrír varamenn.
  5. Fulltrúaráð Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH). Tveir aðalmenn.
  6. Heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðis. Tveir aðalmenn og tveir til vara í heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðis og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.
  7. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fjórir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. lögum Sambands íslenskra sveitarfélaga.
  8. Launamálaráðstefna launanefndar sveitarfélaga. Allt að þrír fulltrúar og þrír til vara.
  9. Samráðsnefnd Mosfellsbæjar og STAMOS. Tveir aðalmenn.
  10. Samstarfsnefnd um málefni lögreglunnar. Einn aðalmaður í samstarfsnefndina skv. 12. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.
  11. Skólanefnd Borgarholtsskóla. Einn aðalmaður og einn varamaður.
  12. Skólanefnd Framhaldsskólans í Mosfellsbæ. Tveir aðalmenn og tveir varamenn.
  13. Stjórn skíðasvæðis höfuðborgarsvæðisins og Bláfjallafólkvangs bs. Einn aðal­maður og einn varamaður.
  14. Stjórn Sorpu bs. Einn aðalmaður og einn varamaður.
  15. Stjórn Strætó bs. Einn aðalmaður og einn varamaður.
  16. Stjórn SHS bs. Einn varamaður. Bæjarstjóri alltaf aðalmaður.
  17. Stjórn SSH. Einn varamaður. Bæjarstjóri alltaf aðalmaður.
  18. Svæðisskipulagsráð SSH. Tveir aðalmenn.
  19. Þjónustuhópur aldraðra. Einn aðalmaður og einn varamaður skv. 7. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999 og samkomulagi við sveitarfélög sem aðild eiga að sama heilsugæsluumdæmi.

D. Verkefnabundnar nefndir.

Bæjarstjórn getur skipað nefndir til að vinna að afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils bæjarstjórnar eða fyrr ef verki nefndarinnar er lokið.
Bæjarstjórn getur afturkallað umboð slíkrar nefndar hvenær sem er.

VII. KAFLI

Framkvæmdastjóri og aðrir starfsmenn sveitarfélagsins.

47. gr.

Ráðning framkvæmdastjóra.

Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við hann þar sem meðal annars skal kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör. Ráðningarsamningur skal staðfestur af bæjarstjórn.

48. gr.

Hlutverk bæjarstjóra.

Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs bæjarins. Hann skal sjá um að stjórnsýsla sveitarfélagsins samræmist lögum, samþykktum og viðeigandi fyrirmælum yfirmanna.

Bæjarstjóri undirbýr fundi bæjarráðs og bæjarstjórnar, semur dagskrá og boðar til funda í samræmi við 9.-29. gr. Hann boðar einnig fyrsta fund nýkjörinna nefnda, sbr. 46. gr.

Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn bæjarfulltrúi. Sé bæjarstjóri kjörinn bæjarfulltrúi telst hann ávallt sitja fundinn sem slíkur án þess að vanrækja mætingarskyldu sína skv. 22. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Bæjarstjóri hefur og rétt til setu á fundum nefnda bæjarins með sömu réttindum, sbr. 3. mgr.

Bæjarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og málefna bæjarins að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki ákveðið annað.

Bæjarstjóri er prókúruhafi bæjarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup, sölu og ráðstöfun fasteigna bæjarins, lántökur og ábyrgðir, svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjarstjórnar þarf til. Bæjarstjóra er heimilt með samþykki bæjarstjórnar að veita öðrum starfsmanni bæjarins prókúru.

Framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs gegnir störfum bæjarstjóra í forföllum hans nema bæjarstjórn feli það öðrum.

49. gr.

Ráðning í æðstu stjórnunarstöður.

Bæjarstjórn ræður framkvæmdastjóra sviða og veitir þeim lausn frá störfum.

50. gr.

Um ráðningu annarra starfsmanna.

Bæjarstjórn setur á grundvelli þessarar greinar reglur um ráðningar annarra helstu starfsmanna, lausn frá störfum, launuð og launalaus leyfi, ráðningamál á vegum for­stöðu­manna, meðferð gagna, hlutverk launadeildar, mannauðsmál o.fl.

51. gr.

Framsal bæjarstjórnar til starfsmanna til fullnaðarafgreiðslu mála.

Um framsal bæjarstjórnar til starfsmanna til fullnaðarafgreiðslu mála vísast til 35. gr. þessarar samþykktar.

52. gr.

Þagnarskylda starfsmanna.

Starfsmenn Mosfellsbæjar og aðrir sem sveitarfélagið ræður til vinnu við ákveðin verkefni eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt eiga að fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

53. gr.

Um starfskjör og réttindi starfsmanna.

Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna bæjarins fer eftir ákvæðum kjara­samn­inga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga.

VIII. KAFLI

Fjármál sveitarfélagsins.

54. gr.

Fjárstjórnarvald bæjarstjórnar.

Einvörðungu bæjarstjórn getur tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjármál sveitarfélagsins. Til slíkra málefna teljast m.a. ákvarðanir um eftirtalin atriði séu ekki gerðar beinar undantekningar þar á með lögum:

  1. staðfestingu ársreiknings,
  2. fjárhagsáætlun næstkomandi árs,
  3. fjárhagsáætlun til fjögurra ára,
  4. viðauka við fjárhagsáætlanir skv. 2. og 3. tölul.,
  5. lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins,
  6. sölu eigna sveitarfélagsins og annarra réttinda þess,
  7. álagningu skatta og gjalda,
  8. ráðningu eða uppsögn endurskoðanda.

55. gr.

Afgreiðsla og form fjárhagsáætlunar.

Bæjarstjórn skal á hverju ári afgreiða fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og næstu þrjú ár þar á eftir. Bæjarráð leggur samkvæmt 1. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga tillögu um fjárhagsáætlun fyrir bæjarstjórn eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Bæjarstjórn skal fjalla um hana á tveimur fundum sem fram skulu fara með minnst tveggja vikna millibili. Að lokinni umræðu bæjarstjórnar skal afgreiða tillöguna, þó ekki síðar en 15. desember ár hvert.

Fjárhagsáætlanir skulu gefa glögga mynd af rekstri sveitarfélagsins, efnahag og breyt­ingum á handbæru fé. Einnig skal þar koma fram greinagott yfirlit um tekjuöflun, ráð­stöfun fjármuna og fjárheimildir sveitarfélagsins. Við gerð fjárhagsáætlana skal hafa hlið­sjón af fjárhagslegri stöðu sveitarsjóðs og stofnana sveitarfélagsins við upphaf áætl­unar­tímabilsins.

Bæjarstjórn skal senda ráðuneytinu fjárhagsáætlun innan fimmtán daga frá afgreiðslu hennar, sbr. 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga. Sama á við um viðauka við fjárhags­áætlun.

56. gr.

Bindandi áhrif ákvörðunar um fjárhagsáætlun ársins.

Ákvörðun sem bæjarstjórn tekur skv. 54. gr. samþykktar þessarar og 62. gr. sveitar­stjórnarlaga um fjárhagsáætlun næstkomandi árs er bindandi regla um allar fjár­hags­legar ráðstafanir af hálfu sveitarfélagsins. Aðrir geta þó ekki byggt sjálfstæðan rétt til fjárframlaga eða annarrar fyrirgreiðslu sveitarfélagsins á fjárhagsáætlunum.

Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. nema bæjarstjórn hafi áður samþykkt viðauka við áætlunina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráðstafanir sem hafa í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuldbindingum eða tilfærslur milli liða í fjárhagsáætlun í þegar samþykktri áætlun. Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt heildarútgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar hans.

Þrátt fyrir 2. mgr. má í undantekningartilvikum gera þær ráðstafanir sem skylt er samkvæmt lögum eða öðrum bindandi réttarreglum án þess að bæjarstjórn hafi áður samþykkt viðauka, enda þoli þær ekki bið. Viðhlítandi heimildar bæjarstjórnar skal þá afla svo fljótt sem auðið er. Skal erindi um slíka heimild lagt fyrir þegar á næsta fundi bæjarstjórnarinnar.

57. gr.

Fjármálareglur og viðmið um afkomu sveitarfélagsins.

Bæjarstjórn ber að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveitarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldu­bundnum verkefnum sínum, sbr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga og ákvæði reglugerðar nr. 502/2012 um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.

58. gr.

Ábyrg meðferð fjármuna og heimildir til fjárskuldbindinga.

Bæjarstjórn skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna sveitarfélagsins og varðveita fjármuni með ábyrgum hætti, svo sem á innlánsreikningum fjármálastofnana eða með því að kaupa ríkistryggð verðbréf. Um heimildir til fjárfestinga í hagnaðarskyni fer skv. ákvæðum 65. gr. sveitarstjórnarlaga.

Áður en bæjarstjórn tekur ákvörðun um fjárfestingu, framkvæmd eða aðra skuldbindingu sem nemur hærri fjárhæð en 20% af skatttekjum sveitarfélagsins yfirstandandi reikn­ings­ár er skylt að gera sérstakt mat á áhrifum hennar á fjárhag sveitarfélagsins, sbr. ákvæði 66. gr. sveitarstjórnarlaga.

Um heimildir sveitarfélagsins Mosfellsbæjar til veðsetninga og að gangast í ábyrgðir fer skv. 68. og 69. gr. sveitarstjórnarlaga.

59. gr.

Ársreikningur.

Gera skal ársreikning fyrir sveitarsjóð, stofnanir sveitarfélagsins og fyrirtæki þess. Jafnframt skal gera samstæðureikning fyrir sveitarfélagið, þ.e. sveitarsjóð, stofnanir þess og fyrirtæki með sjálfstætt reikningshald, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga. Ársreikningur skal gerður samkvæmt lögum um ársreikninga, reglum settum samkvæmt þeim lögum og sveitarstjórnarlögum, sem og góðri reikningsskilavenju.

Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður og samþykktur af bæjarráði og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í bæjarstjórn fyrir 15. apríl ár hvert.

Bæjarstjórn skal hafa lokið staðfestingu ársreiknings sveitarfélagsins, stofnana og fyrir­tækja þess eigi síðar en 15. maí ár hvert.

Ársreikning sveitarfélagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, skal senda ráðuneyti sveitar­stjórnar­mála og Hagstofu Íslands ekki síðar en 20. maí ár hvert.

60. gr.

Endurskoðun ársreikninga.

Bæjarstjórn ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun ársreikninga hjá sveitarfélaginu. Endurskoðun fer eftir lögum um endur­skoðendur, lögum um ársreikninga og alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum, sem og fyrir­mælum 72. og 73. gr. sveitarstjórnarlaga.

IX. KAFLI

Samráð við íbúa – Þátttökulýðræði.

61. gr.

Almenn atkvæðagreiðsla að frumkvæði íbúa.

Ef minnst 20% þeirra sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu óska almennrar atkvæða­greiðslu skv. 108. gr. sveitarstjórnarlaga skal bæjarstjórn verða við því eigi síðar en innan árs frá því að slík ósk berst.

Um framkvæmd undirskriftasöfnunar, hlutverk bæjarstjórnar og framkvæmd almennrar atkvæðagreiðslu fer skv. 107. og 108. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

62. gr.

Breyting á samþykkt.

Til þess að gera breytingu á samþykkt þessari þarf umræður á tveimur fundum í bæjar­stjórn með a.m.k. viku millibili, samþykki meirihluta atkvæða og staðfestingu ráð­herra sveitarstjórnarmála.

63. gr.

Gildistaka.

Samþykkt þessi, sem bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur sett skv. 9. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi sam­þykkt um stjórn Mosfellsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 621/2010.

64. gr.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. um að fjöldi fulltrúa í bæjarstjórn Mosfellsbæjar skuli vera níu tekur það ákvæði fyrst gildi við upphaf kjörtímabilsins 2014-2018 en þangað til sitja sjö fulltrúar í bæjarstjórninni.

Innanríkisráðuneytinu, 21. febrúar 2014.

F. h. r.

Hermann Sæmundsson.

Stefanía Traustadóttir.

B deild - Útgáfud.: 7. mars 2014