Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Leiðréttingar:
Leiðrétt skjal: B_nr_1254_2018 leidrett.pdf
Leiðrétt 18. janúar 2018:
HTML-texti og PDF-skjal: Dagsetning við undirritun „21. desember 2018“ verður: 17. desember 2018. 1. gr. verður 2. gr. og 2. gr. verður 3. gr. Ný 1. gr. verður svohljóðandi: 15. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga tekur aðeins til kostnaðar vegna nauðsynlegra tannlækninga og tannréttinga vegna eftirtalinna tilvika: 1. Skarðs í efri tannboga eða klofins góms, harða eða mjúka, sem valdið hefur alvarlegri tannskekkju. Sama á við ef meiri líkur en minni eru á að afleiðingar fæðingargallans verði alvarlegar. 2. Annarra heilkenna sem geta valdið sambærilega alvarlegri tannskekkju, sbr. 1. tl. Sama á við ef líkur eru á að afleiðingar heilkennisins verði alvarlegar. 3. Meðfæddrar vöntunar fjögurra eða fleiri fullorðinstanna framan við 12 ára jaxla. 4. Annarra sambærilega alvarlegra tilvika, svo sem alvarlegs misræmis í vexti beina í höfuðkúpu og kjálka þar sem meðferð krefst kjálkafærsluaðgerðar þar sem bein eru bæði tekin í sundur og fest á nýjum stað í sömu aðgerð.


Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1254/2018

Nr. 1254/2018 21. desember 2018

REGLUGERÐ
um (6.) breytingu á reglugerð nr. 451/2013 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra við tannlækningar.

1. gr.

Í stað orðanna ,,Heimildin gildir frá og með 1. janúar 2017 til og með 31. desember 2018“ í 2. málsl. 21. gr. kemur: Heimildin gildir frá og með 1. janúar 2019 til og með 31. desember 2020.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 20. gr., 1. mgr. 29. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 21. desember 2018.

Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra.

Guðrún Sigurjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 28. desember 2018