Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 988/2016

Nr. 988/2016 14. september 2016

SAMÞYKKT
um gatnagerðargjald á deiliskipulögðum svæðum í Mosfellsbæ.

1. gr.

Almenn heimild.

Af öllum nýbyggingum og viðbyggingum í þéttbýli í Mosfellsbæ skal greiða gatnagerðargjald sam­kvæmt samþykkt þessari, sbr. 12. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006. Einnig skal greiða vegna sömu framkvæmda heimæðargjald vatnsveitu skv. lögum um vatnsveitur sveitar­félaga nr. 32/2004, tengigjald holræsa skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 og byggingarleyfisgjald skv. lögum um mannvirki nr. 160/2010. Gjöld vegna þessa fara eftir við­kom­andi gjaldskrám.

2. gr.

Ráðstöfun gatnagerðargjalds.

Gatnagerðargjaldi skal varið til gatnagerðar í sveitarfélaginu og viðhalds gatna og annarra gatna­mannvirkja. Tengi- og heimæðargjöld eru innheimt sérstaklega og ekki innifalin í gatna­gerðar­gjaldi.

3. gr.

Gjaldstofn gatnagerðargjalds.

Gatnagerðargjald er tvíþætt. Annars vegar er það vegna nýrra bygginga og hins vegar vegna stækkunar á eldra húsnæði. Stofn til álagningar gatnagerðargjalds er fermetrafjöldi byggingar á tiltekinni lóð. Gjaldstofninn er ákveðinn á eftirfarandi hátt:

  1. Þegar sveitarfélagið úthlutar eða selur lóð eða byggingarrétt á lóð er gatnagerðargjald lagt á í samræmi við heildarfermetrafjölda þeirrar byggingar sem heimilt er að reisa á viðkomandi lóð samkvæmt gildandi deiliskipulagi.
  2. Þegar gatnagerðargjald verður ekki lagt á skv. a-lið, eða ef byggingarleyfi er veitt fyrir stærri byggingu en álagning skv. a-lið var upphaflega miðuð við, er við útgáfu bygg­ingar­leyfis lagt á gatnagerðargjald í samræmi við heildarfermetrafjölda þeirrar byggingar sem byggingarleyfi tekur til.

Við álagningu skv. b-lið 2. mgr. skal miða við heildarstærð húss samkvæmt samþykktum upp­dráttum og ÍST 50.

4. gr.

Útreikningur gatnagerðargjalds.

Af hverjum fermetra húss greiðist ákveðinn hundraðshluti byggingarkostnaðar pr. fermetra í vísi­tölu­húsi fjölbýlis, eins og hann er hverju sinni samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands á grund­velli laga nr. 42/1987.

Hundraðshluti byggingarkostnaðar ákvarðast eftir hústegund svo sem hér segir:

  Einbýlishús með eða án tvíbýlisaðstöðu 15%
  Parhús, tvíbýlishús 15%
  Raðhús, keðjuhús 15%
  Fjölbýlishús 15%
  Verslunar-, þjónustuhúsnæði o.fl. 15%
  Iðnaðarhúsnæði 15%
  Hesthús (að undanskildum stækkunum allt að 20 m²*) 15%
  Bílakjallarar 3,75%
  Færanlegar kennslustofur 1%**
  * Af stækkun eldri hesthúsa, 10 ára og eldri, allt að 20 fermetrum á hverju 10 ára ára tímabili, greiðist ekki gatnagerðargjald, en af stækkun umfram 20 fermetra greiðist hálft gatna­gerðar­gjald eftir viðkomandi flokki.
  ** Færanlegar kennslustofur er samheiti yfir færanlegt og flytjanlegt húsnæði sem nota á við fræðslu- og kennslustarf á grunnskóla-, leikskóla-, tónlistarskóla-, framhaldsskóla-, háskóla-, og iðn­mennt­unar­stigi og ráðgert er að byggingar standi ekki til frambúðar á viðkomandi lóð og skemur en 10 ár. Gatnagerðargjald sem lagt er á þessa hústegund er óendurkræft þegar hús­næði er flutt af lóðinni, en greitt gatnagerðargjald skv. þessari mgr. er þó heimilt að gangi til greiðslu gatnagerðargjalda þegar sami aðili reisir varanlegt mannvirki á lóðinni, sbr. næstu mgr. þessarar greinar og gengur þegar greitt gatnagerðargjald af færanlegum kennslustofum til greiðslu sé kennslustofa flutt á aðra lóð skv. þessari mgr.

Þegar veitt er byggingarleyfi fyrir endurbyggingu (niðurrifi húss), breytingu eða breyttri notkun hús­næðis þannig að það færist í hærri gjaldflokk, sbr. 1. mgr., skal greiða gatnagerðargjald af fer­metra­fjölda viðkomandi húsnæðis sem svarar til mismunar hærri og lægri gjaldflokksins. Þegar hús er rifið og annað byggt í staðinn er heimilt að fermetrar rifna hússins gangi á móti gjald­skyldum fermetrum þess nýja á sömu lóð. Lóðarhafi, eða byggingarleyfishafi þar sem það á við, á ekki rétt á endurgreiðslu ef bygging færist í lægri gjaldflokk við slíka breytingu.

Fjárhæðir taka breytingum tvisvar á ári, 1. janúar og 1. júlí ár hvert í samræmi við breytingu á byggingarkostnaði vísitöluhússins.

5. gr.

Undanþágur frá greiðslu gatnagerðargjalds.

Undanþegnar greiðslu gatnagerðargjalds eru eftirtaldar byggingar:

  1. Lagnakjallarar og aðrir gluggalausir kjallarar, sem aðeins er gengið í innan frá.
  2. Stækkun á eldra íbúðarhúsnæði, 15 ára og eldra, allt að 30 fermetrum á hverja íbúð á hverju 10 ára tímabili. Af stækkun umfram 30 fermetra greiðist hálft gatnagerðargjald eftir viðkomandi flokki.
  3. Svalaskýli íbúðarhúsa sem eru 20 fermetrar eða minni.

6. gr.

Sérstök lækkunarheimild.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar er heimilt að lækka eða fella niður gatnagerðargjald af einstökum lóðum í sveitarfélaginu við sérstakar aðstæður, svo sem vegna þéttingar byggðar, atvinnuuppbyggingar, lítillar ásóknar í viðkomandi lóð eða eftirspurnar eftir leiguhúsnæði.

Ákveði bæjarstjórn að nýta sér þessa heimild, skal hún gera um það sérstaka samþykkt þar sem fram komi hversu lengi heimild til lækkunar frá 4. gr. þessarar gjaldskrár gildir, hvert sé tilefni lækk­unar­innar með vísan til 1. mgr. og aðrar þær málefnalegu ástæður sem búa að baki ákvörð­un­inni. Fella má ákvörðun skv. þessari grein inn í úthlutunarskilmála lóða.

7. gr.

Greiðsluskilmálar.

Gjalddagar gatnagerðargjalds skulu vera sem hér segir:

  1. Gatnagerðargjald skv. a-lið 2. mgr. 3. gr. samþykktar þessarar fellur í gjalddaga við úthlutun lóðar eða sölu byggingarréttar sem er í eigu sveitarfélags eða sveitarfélagið hefur ráðstöfunarrétt á. Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.
  2. Gatnagerðargjald skv. b-lið 2. mgr. 3. gr. og 3. mgr. 4. gr. samþykktar þessarar fellur í gjalddaga við útgáfu byggingarleyfis. Eindagi er hinn sami og gjalddagi.
  3. Við útgáfu byggingarleyfis vegna framkvæmda sem falla undir 5. gr. en eru ekki undan­þegnar gatnagerðargjaldi, skal gatnagerðargjald greitt við útgáfu byggingarleyfis. Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.

Heimilt er ákveða, þegar um er að ræða viðamikil og áfangaskipt byggingarverkefni í sveitar­félaginu eða sérstök rök mæla með því, að ákveða gjalddaga og eindaga gatnagerðargjalds með öðrum hætti en greinir í 1. mgr. eða að gjaldið skuli innheimt á fleiri en einum gjalddaga.

Af gjaldföllnu gatnagerðargjaldi skulu greiðast dráttarvextir, frá gjalddaga, skv. ákvæðum laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

8. gr.

Ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds. Lögveðsréttur.

Lóðarhafi, eða byggingarleyfishafi þar sem það á við, er gjaldskyldur skv. samþykkt þessari og ber ábyrgð á greiðslu gatnagerðargjalds.

Gatnagerðargjald er ásamt áföllnum vöxtum og kostnaði tryggt með lögveðsrétti í viðkomandi fast­eign með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Gatnagerðargjald er aðfarar­hæft án undangengins dóms eða stjórnvaldsákvörðunar.

9. gr.

Endurgreiðsla gatnagerðargjalds.

Gatnagerðargjald skal endurgreitt í eftirtöldum tilvikum:

  1. Ef lóð er skilað skv. reglum eða samkomulagi eða ef lóðarúthlutun er afturkölluð.
  2. Ef gatnagerðargjald hefur verið greitt í tengslum við útgáfu byggingarleyfis, en leyfið fellur úr gildi.

Gatnagerðargjald skal endurgreitt innan 90 daga ef lóð er afturkölluð eða henni skilað skv. a-lið, sama gildir um gatnagerðargjald sem lagt hefur verið á í tengslum við útgáfu byggingarleyfis sbr. b-lið, en þá skal gatnagerðargjald endurgreitt innan 90 daga frá því að byggingarleyfishafi hefur sannanlega krafist endurgreiðslu.

Gatnagerðargjald skal endurgreitt án vaxta og verðbóta.

Um endurgreiðslu fer að öðru leyti skv. 9. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006. 

10. gr.

Eldri samningar og skilmálar um gatnagerðargjald.

Um samninga um gatnagerðargjald af tilteknum lóðum, sem lóðarhafar eða lóðareigendur hafa gert við Mosfellsbæ fyrir gildistöku samþykktar þessarar, svo og skilmála varðandi gatnagerðargjald, sem bæjarstjórn hefur sett fyrir sömu tímamörk og lóðarhafi og lóðareigandi hefur undirgengist, fer eftir samþykkt um gatnagerðargjald í Mosfellsbæ nr. 682/2015 og eldri gjaldskrám eftir atvikum.

11. gr.

Gildistaka.

Samþykktin er samin og samþykkt af bæjarstjórn Mosfellsbæjar, skv. heimild í 12. gr. laga nr. 153/2006 um gatnagerðargjald.

Samþykktin öðlast gildi við birtingu og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um gatnagerðargjald á deiliskipulögðum svæðum í Mosfellsbæ nr. 1018/2015 frá 29. október 2015.

Mosfellsbæ, 14. september 2016.

Haraldur Sverrisson bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 21. nóvember 2016