Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1215/2016

Nr. 1215/2016 15. desember 2016

AUGLÝSING
um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012.

1. gr.

Samkvæmt reglugerð fyrir Veitustofnun Seltjarnarness nr. 237, 4. mars 2011 og orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum hefur ráðuneytið staðfest eftirfarandi breytingu á gjaldskrá Veitu­stofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012, er tekur gildi við birtingu í Stjórnartíðindum.

2. gr.

3. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:

Gjöld fyrir afnot af heita vatninu eru sem hér segir:

Tegund Veitusvæði Kr. 2% skattur Grunnur
Einingaverð Sala í þéttbýli, húshitun 82,00 1,64 kr./m³
Einingaverð Sala í þéttbýli, til snjóbræðslu 82,00 1,64 kr./m³
Einingaverð Sala í þéttbýli, til iðnaðar 82,00 1,64  
 
Tegund Stærð mælis Kr. 2% skattur Grunnur
Fast verð A: 15 mm og stærri 21,00 0,42 kr./dag

Fast gjald er hluti af almennum taxta og í öllum öðrum samningum þar sem selt er samkvæmt mæli.

Fast verð er fyrir föstum kostnaði og er óháð stærð mælis. Gjaldinu er dreift jafnt niður á tímabil reikninga.

3. gr.

5. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:

Fast gjald á heimæð fyrir hús allt að 300 m³ að stærð kr. 204.750
Umframgjald fyrir hús 300-1.000 m³ að stærð kr. 247 pr. m³
Umframgjald fyrir hús yfir 1.000 m³ að stærð kr. 165 pr. m³
1 rennslismælir á grind kr. 65.323

4. gr.

Aðrir liðir gjaldskrárinnar eru óbreyttir.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. desember 2016.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2016