Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 140/2023

Nr. 140/2023 31. janúar 2023

REGLUR
varðandi útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli með viðmiðunardagsetningar frá 30. september 2022 til 30. desember 2022.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um starfsemi innlendra vátryggingafélaga og starfsemi erlendra vátrygg­inga­félaga hér á landi, sbr. 2. og 3. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi.

 

2. gr.

Upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla.

Samkvæmt 1. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi, skal vátryggingaskuld vera samtala besta mats á skuldbindingum og áhættuálagi. Reglur þessar eru settar til að innleiða framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) þar sem fram koma tæknilegar upp­lýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla samkvæmt 2. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016.

 

3. gr.

Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2282 frá 21. nóvember 2022 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátrygginga­skuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 30. september 2022 til 30. desember 2022 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 324/2022 frá 9. desember 2022.

Með vísan til heimildar 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016 vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af framkvæmdarreglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) í Stjórnartíðindum Evrópu­sambandsins (e. Official Journal of the European Union), OJ, deild L, nr. 301, þann 22. nóvember 2022, bls. 22-118.

 

4. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016, um vátrygginga­starfsemi, öðlast þegar gildi.

 

Seðlabanka Íslands, 31. janúar 2023.

 

  Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 15. febrúar 2023