Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 227/2020

Nr. 227/2020 17. mars 2020

REGLUR
um sveiflujöfnunarauka á fjármálafyrirtæki.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki, sem skylt er að viðhalda sveiflujöfnunarauka sam­kvæmt 86. gr. d. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

 

2. gr.

Gildi sveiflujöfnunarauka.

Fjármálafyrirtæki skulu viðhalda sveiflujöfnunarauka sem nemur 0% af áhættugrunni, vegna innlendra áhættuskuldbindinga. Sveiflujöfnunaraukanum skal einnig viðhaldið á samstæðugrunni. 

Við útreikning eigin fjár sem viðhalda skal samkvæmt 86. gr. d. laga um fjármálafyrirtæki ber að líta til vegins meðaltals sveiflujöfnunarauka hér á landi og í öðrum ríkjum á Evrópska efnahags­svæðinu.

 

3. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru á grundvelli 1. mgr. 86. gr. d. laga nr. 161/2002 um fjármála­fyrirtæki, hafa verið samþykktar af fjármálastöðugleikanefnd og öðlast þegar gildi.

 

Seðlabanka Íslands, 17. mars 2020.

 

  Ásgeir Jónsson Rannveig Júníusdóttir
  seðlabankastjóri. framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 18. mars 2020