Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1/2017

Nr. 1/2017 11. janúar 2017

FORSETAÚRSKURÐUR
um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt:

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar og laga um Stjórnarráð Íslands, ber stjórnarmálefni undir ráðuneyti í Stjórnarráði Íslands sem hér segir:

1. gr.

Forsætisráðuneyti.

Forsætisráðuneyti fer með mál er varða:

1. Stjórnskipan lýðveldisins Íslands og Stjórnarráð Íslands í heild, þar á meðal:

  1. Embætti forseta Íslands, þ.m.t. ákvörðun kjördags, embættisgengi og embættisbústað.
  2. Alþingi.
  3. Ríkisráð Íslands.
  4. Ríkisstjórn Íslands.
  5. Skipun ráðherra og lausn.
  6. Skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti.
  7. Skiptingu starfa milli ráðherra.
  8. Skiptingu stjórnarmálefna á milli ráðuneyta.
  9. Ráðherranefndir.
  10. Forystu og samhæfingu innan Stjórnarráðs Íslands.
  11. Stjórnarfar almennt, þ.m.t. lög um Stjórnarráð Íslands, stjórnsýslulög og upplýsingalög.
  12. Framfylgd laga og reglna um undirbúning stjórnarfrumvarpa.
  13. Siðareglur fyrir ráðherra og starfsmenn Stjórnarráðs Íslands.
  14. Málstefnu fyrir Stjórnarráð Íslands.
  15. Ráðstöfun skrifstofuhúsa ráðuneyta og gestahúsa ríkisstjórnarinnar, þ.m.t. Þingvalla­bæjarins.
  16. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

2. Þjóðhagsmál, þar á meðal:

  1. Hagstjórn almennt.
  2. Ráðherranefnd um efnahagsmál.
  3. Ráðherranefnd um ríkisfjármál.
  4. Seðlabanka Íslands.

3. Þjóðartákn og orður, þar á meðal:

  1. Fána Íslands og ríkisskjaldarmerki.
  2. Þjóðsöng Íslendinga.
  3. Hina íslensku fálkaorðu.
  4. Önnur heiðursmerki.

4. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.

5. Annað, þar á meðal:

  1. Þjóðaröryggisráð.
  2. Almannavarna- og öryggismálaráð.
  3. Þjóðlendur og málefni óbyggðanefndar.
  4. Embætti ríkislögmanns.
  5. Umboðsmann barna.
  6. Hrafnseyri við Arnarfjörð.

2. gr.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti fer með mál er varða:

1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.

2. Almenn starfsskilyrði og stuðningsumhverfi atvinnulífs þar á meðal:

  1. Atvinnuþróun, tæknirannsóknir og nýsköpun.
  2. Stuðning ríkisins við rannsóknir, þróunarstarf og nýsköpun í atvinnugreinum, sbr. þó g-lið 2. tölul. 3. gr. og f-lið 35. tölul. 4. gr.
  3. Tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist.
  4. Endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar.
  5. Opinberar fjárfestingar í nýsköpunarfyrirtækjum.
  6. Ívilnanir vegna nýfjárfestinga og gerð fjárfestingarsamninga annarra en milliríkjasamninga.
  7. Fjárfestingar erlendra aðila í atvinnurekstri.
  8. Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
  9. Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins.
  10. Skrifstofu rannsóknarstofnana atvinnuveganna.

3. Orkumál og auðlindanýtingu þar á meðal:

  1. Öryggi raforkukerfisins.
  2. Raforkumarkað.
  3. Jöfnun kostnaðar við húshitun og dreifingu raforku.
  4. Forystu um orkusparnað, nýtingu orku og orkuskipti.
  5. Visthönnun vöru sem notar orku og orkumerkingar.
  6. Hitaveitur, gjaldskrár og stofnstyrki.
  7. Leyfi til nýtingar á auðlindum í jörðu og á, í eða undir hafsbotni.
  8. Leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis (olíuleit).
  9. Nýtingu vatns.
  10. Orkustofnun.
  11. Úrskurðarnefnd raforkumála.

4. Viðskiptalíf, almenna lagaumgjörð, þar á meðal:

  1. Rafræn viðskipti, rafræna þjónustu og rafrænar undirskriftir.
  2. Frum- og milliinnheimtu peningakrafna.
  3. Víxla, tékka og skuldabréf.
  4. Fyrningu kröfuréttinda.
  5. Ábyrgðarmenn.
  6. Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar, þ.m.t. einkaleyfi, vörumerki, félagamerki, uppfinningar starfs­manna og hönnun.
  7. Einkaleyfastofu.
  8. Áfrýjunarnefnd hugverkaréttinda á sviði iðnaðar.
  9. Félagarétt, þ.m.t. bókhald, endurskoðendur og ársreikninga.
  10. Skráningu fyrirtækja og félaga og málefni fyrirtækjaskrár og ársreikningaskrár.
  11. Sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur.
  12. Framkvæmd útboða.
  13. Samkeppnismál.
  14. Samkeppniseftirlitið.
  15. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála.
  16. Staðla og Staðlaráð Íslands.
  17. Faggildingu.
  18. Löggildingu viðskiptafræðinga og hagfræðinga.
  19. Löggildingu endurskoðenda og málefni Endurskoðendaráðs.

5. Sjávarútveg og veiði í ám og vötnum, eldi og ræktun nytjastofna, þar á meðal:

  1. Stjórn á verndun og nýtingu fiskistofna og annarra lifandi auðlinda hafsins og hafsbotnsins.
  2. Veiðigjöld.
  3. Rannsóknir og eftirlit með verndun og nýtingu fiskistofna og annarra lifandi auðlinda hafsins og hafsbotnsins.
  4. Hafrannsóknastofnun.
  5. Framkvæmd fiskveiðisamninga við erlend ríki.
  6. Fiskvinnslu og aðra vinnslu úr sjávarfangi.
  7. Uppboðsmarkað sjávarafla.
  8. Eldi hvers konar nytjastofna í sjó eða ferskvatni, skipulag og eftirlit með því.
  9. Veiði í ám og vötnum.
  10. Rannsóknir á lífríki í ám og vötnum og ráðgjöf um nýtingu þeirra, þ.m.t. málefni Veiði­mála­stofnunar.
  11. Fiskræktarsjóð.
  12. Matsnefnd samkvæmt lögum um lax- og silungsveiði.
  13. Nýsköpun og þróun í sjávarútvegi.
  14. Fiskistofu.
  15. Málefni úrskurðarnefndar um ólögmætan sjávarafla.
  16. Verðlagsstofu skiptaverðs, verðlagsráð sjávarútvegsins.
  17. Málefni úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna.

6. Landbúnað, matvæli og matvælaöryggi, þar á meðal:

  1. Framleiðslu landbúnaðarafurða.
  2. Búfjárhald og slátrun.
  3. Verðlagningu og sölu á búvörum.
  4. Inn- og útflutning landbúnaðarafurða.
  5. Eftirlit með inn- og útflutningi dýra og plantna og erfðaefna þeirra.
  6. Velferð dýra.
  7. Varðveislu erfðaauðlinda í landbúnaði og yrkisrétt.
  8. Framkvæmd búnaðarlaga.
  9. Stuðning ríkisins við framleiðslu- og markaðsmál, þ.m.t. framkvæmd búvörulaga.
  10. Almenn jarðamál, ábúðarmál, afrétti, fjallskil og girðingar, þ.m.t. málefni úttektarmanna og yfirmatsnefndar samkvæmt ábúðarlögum.
  11. Nýtingu hlunninda jarða.
  12. Dýralæknaþjónustu, þ.m.t. starfsleyfi dýralækna.
  13. Heilbrigðiseftirlit með framleiðslu, vinnslu, inn- og útflutningi og markaðssetningu matvæla og fóðurs.
  14. Heilbrigði dýra og varnir gegn dýrasjúkdómum.
  15. Heilbrigði plantna og varnir gegn plöntusjúkdómum.
  16. Eftirlit með sáðvöru og áburði.
  17. Hagþjónustu landbúnaðarins.
  18. Matvælarannsóknir.
  19. Matvælastofnun.
  20. Úrskurðarnefndir á sviði landbúnaðar, þ.m.t. æðardúnsnefnd, ullarmatsnefnd og gæru­mats­nefnd.
  21. Bjargráðasjóð.

7. Iðnað, verslun og þjónustu, þar á meðal:

  1. Iðnað, þ.m.t. verksmiðjuiðnað, handiðnað, stóriðju og fjárfestingarsamninga.
  2. Skipan ferðamála.
  3. Ferðamálastofu.
  4. Úrbætur og uppbyggingu á ferðamannastöðum.
  5. Veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
  6. Bílaleigur.
  7. Skapandi greinar í þágu atvinnuþróunar.
  8. Sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa.
  9. Verslunaratvinnu.
  10. Verslunarskrár, firmu og prókúruumboð.
  11. Umboðssöluviðskipti.
  12. Starfsréttindi í iðnaði.
  13. Löggildingu starfsheita í tækni- og hönnunargreinum.

8. Neytendamál, þar á meðal:

  1. Eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.
  2. Vöruöryggi, þ.m.t. vörur unnar úr eðalmálmum.
  3. Neytendalán.
  4. Lausafjárkaup, fasteignakaup, neytendakaup og þjónustukaup, þ.m.t. málefni kærunefndar um lausafjár- og þjónustukaup.
  5. Samningarétt.
  6. Alferðir.
  7. Afnotarétt orlofshúsnæðis.
  8. Húsgöngu- og fjarsölusamninga.
  9. Mælingar, mæligrunna og vigtarmenn.
  10. Neytendastofu.
  11. Áfrýjunarnefnd um neytendamál.

3. gr.

Fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Fjármála- og efnahagsráðuneyti fer með mál er varða:

1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.

2. Fjárreiður ríkisins og fjármál að því marki sem þau eru ekki falin öðrum aðilum, þar á meðal:

  1. Stefnumörkun og áætlanagerð í opinberum fjármálum.
  2. Forsvar og gerð frumvarps til fjárlaga, fjáraukalaga og lokafjárlaga.
  3. Skuldbindingar fram yfir fjárlagaárið, þ.m.t. rekstrar- og þjónustusamninga.
  4. Almennt eftirlit með framkvæmd fjárlaga.
  5. Sjóðstýringu.
  6. Lánsfjármál og lántökur.
  7. Ríkisaðstoð, ríkisábyrgðir og styrki til einkafyrirtækja, þ.m.t. framkvæmd laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki.
  8. Reikningshald ríkisins.
  9. Samhæfingu fjármála sveitarfélaga við ríkisfjármál.
  10. Fjársýslu ríkisins.

3. Eignir ríkisins, þar á meðal:

  1. Fasteignir, verðbréf og hlutabréf og fyrirsvar þeirra að því marki sem þær eignir eru ekki faldar öðrum.
  2. Húsnæðismál ríkisstofnana.
  3. Bifreiðamál ríkisstofnana.
  4. Opinberar framkvæmdir.
  5. Ríkisjarðir, land í eigu ríkisins og samninga vegna nýtingar vatns- og jarðhitaréttinda, náma og jarðefna á landi utan þjóðlendna.
  6. Jarðasjóð ríkisins.
  7. Bankasýslu ríkisins.
  8. Fasteignir ríkissjóðs.
  9. Framkvæmdasýslu ríkisins.

4. Tekjuöflun ríkisins, þar á meðal:

  1. Skattamál, svo sem álagningu, uppgjör og aðra skattframkvæmd, skattrannsóknir og úr­skurði í skattamálum, þ.m.t. málefni ríkisskattstjóra, skattrannsóknarstjóra ríkisins og yfir­skatta­nefnd.
  2. Tolla og vörugjöld, þ.m.t. tollgæslu og innheimtu opinberra gjalda og málefni tollstjóra.
  3. Aðrar tekjur ríkissjóðs, þ.m.t. arðgreiðslur, leigutekjur og ýmis gjöld.

5. Starfsmannamál ríkisins, þar á meðal:

  1. Almenna stefnumótun í mannauðsmálum ríkisins og fræðslu.
  2. Launa- og kjaramál.
  3. Launavinnslu.
  4. Réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna.
  5. Kjararáð.

6. Lífeyrismál, þar á meðal:

  1. Lífeyrismál starfsmanna ríkisins, forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæsta­réttar­dómara.
  2. Skyldutryggingu lífeyrisréttinda.
  3. Starfsemi lífeyrissjóða að því marki sem þau verkefni eru ekki falin öðrum.
  4. Viðbótartryggingarvernd og séreignarsparnað, þ.m.t. starfstengda eftirlaunasjóði.
  5. Skattfrjálsa úttekt séreignarsparnaðar til kaupa á fyrstu íbúð.

7. Hagstjórn og fjármálastöðugleika, þar á meðal:

  1. Mat á þróun og horfum í efnahagsmálum og gerð þjóðhagsspár.
  2. Efnahagsáætlanir og samstillingu opinberrar hagstjórnar.
  3. Vexti og verðtryggingu.
  4. Lögeyri, gjaldeyri og fjármagnshreyfingar milli landa.
  5. Hagskýrslugerð, og upplýsingar um landshagi, þ.m.t. málefni Hagstofu Íslands.

8. Fjármálamarkað, lagaumgjörð og eftirlit, þar á meðal:

  1. Fjármálafyrirtæki.
  2. Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki.
  3. Verðbréfamarkaði.
  4. Úrskurðarnefnd verðbréfamiðstöðva.
  5. Innstæðutryggingar.
  6. Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta.
  7. Vátryggingar og vátryggingastarfsemi.
  8. Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum.
  9. Viðlagatryggingu Íslands.
  10. Úrskurðarnefnd um viðlagatryggingu.
  11. Greiðslukerfi og greiðsluþjónustu.
  12. Fjármálaeftirlitið.

9. Almennar umbætur í ríkisrekstri, þar á meðal:

  1. Skipulag og stjórnarhætti í ríkisstarfsemi.
  2. Opinber innkaup og málefni Ríkiskaupa.
  3. Kærunefnd útboðsmála.
  4. Hagræðingu í ríkisrekstri og árangursstjórnun.

10. Önnur verkefni, þar á meðal:

  1. Kröfulýsingu í þjóðlendur.
  2. Verslun með áfengi og tóbak og málefni Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins.
  3. Málefni og eigendaforsvar fjölþjóðlegra lánastofnana, annarra en þeirra sem fara með þró­unar­aðstoð, þ.m.t. gagnvart Norræna fjárfestingarbankanum (NIB), Alþjóða­gjaldeyris­sjóðnum (IMF) og Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD).

4. gr.

Innanríkisráðuneyti.

Innanríkisráðuneyti fer með mál er varða:

1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.

2. Ákæruvald, þar á meðal:

  1. Embætti ríkissaksóknara.
  2. Embætti héraðssaksóknara.

3. Dómstóla, aðra en félagsdóm, þar á meðal:

  1. Dómstólaráð.
  2. Dómnefnd um hæfi umsækjenda um dómarastörf.
  3. Nefnd um dómarastörf.

4. Réttarfar, þar á meðal:

  1. Meðferð einkamála.
  2. Meðferð sakamála.
  3. Endurupptökunefnd.
  4. Aðför, kyrrsetningu, lögbann og löggeymslu.
  5. Gjaldþrotaskipti, greiðslustöðvun og nauðasamninga.
  6. Nauðungarsölur.
  7. Lögbókandagerðir.
  8. Öflun sönnunargagna vegna ætlaðra brota á hugverkaréttindum.

5. Réttaraðstoð, þar á meðal:

  1. Gjafsókn.
  2. Réttaraðstoð vegna nauðasamninga.
  3. Gagnkvæma alþjóðlega réttaraðstoð.

6. Refsirétt.

7. Skaðabótarétt og sanngirnisbætur, þar á meðal:

  1. Bætur til þolenda afbrota, þ.m.t. málefni bótanefndar um greiðslu bóta til þolenda afbrota.
  2. Sanngirnisbætur, þ.m.t. málefni úrskurðarnefndar um sanngirnisbætur.
  3. Skaðabætur utan samninga.
  4. Niðurjöfnunarmenn sjótjóns.

8. Lögmenn, dómtúlka og skjalaþýðendur, þ.m.t. málefni úrskurðarnefndar lögmanna.

9. Birtingu laga og stjórnvaldserinda, þar á meðal:

  1. Lagasafn.
  2. Lögbirtingablað.
  3. Stjórnartíðindi.

10. Eignarrétt og veðrétt, þar á meðal:

  1. Eignar- og afnotarétt fasteigna.
  2. Framkvæmd eignarnáms, er eigi ber undir annað ráðuneyti, þ.m.t. málefni matsnefndar eignar­náms­bóta.
  3. Þinglýsingar.

11. Fullnustu dóma, þar á meðal:

  1. Fangelsi.
  2. Fangavist.
  3. Reynslulausn fanga og samfélagsþjónustu.
  4. Flutning dæmdra manna.
  5. Náðun, sakaruppgjöf og uppreist æru.
  6. Fangelsismálastofnun.

12. Almannavarnir.

13. Leit og björgun, þar á meðal:

  1. Samræmda neyðarsímsvörun.
  2. Vöktun innviða.
  3. Köfun.

14. Lögreglu og löggæslu, þar á meðal:

  1. Landamæravörslu.
  2. Gæslu landhelgi og fiskimiða.
  3. Framsal og afhendingu sakamanna.
  4. Schengen.
  5. Peningaþvætti.
  6. Erfðaefnaskrá lögreglu.
  7. Öryggisþjónustu í atvinnuskyni.
  8. Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu.
  9. Embætti ríkislögreglustjóra.
  10. Lögreglustjóraembætti.

15. Sjómælingar og sjókortagerð.

16. Vopnamál.

17. Áfengismál, sem ekki heyra undir annað ráðuneyti.

18. Samgöngur í lofti, á landi og á sjó, þar á meðal:

  1. Flugvelli, vegi, hafnir, vita og sjóvarnir.
  2. Skipulag og uppbyggingu samgöngukerfisins.
  3. Viðhald og rekstur samgöngukerfisins.
  4. Fólksflutninga, farmflutninga og almenningssamgöngur.
  5. Samgönguöryggi.
  6. Samgönguvernd.
  7. Samgönguáætlun.
  8. Skipströnd og vogrek.
  9. Rannsókn samgönguslysa, þ.m.t. málefni rannsóknarnefndar samgönguslysa.
  10. Samgöngutækjaskrár.
  11. Eftirlit með skráningu og búnaði samgöngutækja.
  12. Eftirlit með loftferðum og umferð ökutækja og skipa.
  13. Leiðsögu-, vöktunar-, upplýsinga- og eftirlitskerfi samgangna.
  14. Réttindamál fagaðila í skipum, loftförum og ökutækjum.
  15. Slysavarnaskóla sjómanna.
  16. Lögskráningu sjómanna.
  17. Samgöngustofu.
  18. Vegagerðina.

19. Fjarskipti, þar á meðal:

  1. Fjarskiptanet, þó ekki efni sem sent er á fjarskiptanetum.
  2. Fjarskiptaþjónustu, gagnaflutninga og fjarskiptarekstur.
  3. Fjarskiptavernd.
  4. Öryggi rafrænna samskipta og netöryggi.
  5. Lén og málefni netsins.
  6. Eftirlit með fjarskiptum.
  7. Fjarskiptasjóð.
  8. Póstþjónustu, póstrekstur og eftirlit með póstþjónustu.
  9. Póst- og fjarskiptastofnun og málefni úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála.

20. Almannaskráningu og lögheimili, fasteignaskrá, landamerki og fasteignamat, þar á meðal:

  1. Þjóðskrá Íslands.
  2. Yfirfasteignamatsnefnd.

21. Málefni upplýsingasamfélagsins.

22. Mannréttindi og mannréttindasáttmála.

23. Sifjarétt, þar á meðal:

  1. Málefni barna, nema barnavernd, þ.m.t. ættleiðingar og brottnám.
  2. Hjúskap.

24. Rannsókn á starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn.

25. Persónurétt og persónuvernd, þar á meðal:

  1. Lögræði.
  2. Mannanöfn og málefni mannanafnanefndar.
  3. Persónuvernd.

26. Erfðarétt, lög um horfna menn og yfirfjárráð, skipti á dánarbúum.

27. Kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu.

28. Trúmál, þar á meðal:

  1. Trúfélög.
  2. Þjóðkirkjuna, biskupsstofu og áfrýjunarnefnd í málefnum þjóðkirkjunnar.
  3. Bókasöfn prestakalla.
  4. Sóknargjöld.
  5. Kristnisjóð.
  6. Kirkjumálasjóð.
  7. Helgidagafrið.
  8. Lífsskoðunarfélög.

29. Persónuskilríki, þ.m.t. vegabréf, önnur en diplómatísk.

30. Ríkisborgararétt.

31. Málefni útlendinga, að frátöldum atvinnuleyfum, þar á meðal:

  1. Útlendingastofnun.
  2. Kærunefnd útlendingamála.

32. Happdrætti, veðmálastarfsemi, talnagetraunir og almennar fjársafnanir.

33. Sveitarstjórnarmál, þar á meðal:

  1. Stjórnsýslu og verkefni sveitarfélaga.
  2. Tekjustofna og fjármál sveitarfélaga.
  3. Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
  4. Mörk sveitarfélaga.
  5. Landskipti.
  6. Innheimtustofnun sveitarfélaga.

34. Byggðamál, þar á meðal:

  1. Gagnasöfnun og rannsóknir til undirbúnings stefnu í byggðamálum.
  2. Byggðaáætlun og jöfnun búsetuskilyrða.
  3. Samstarf og samráð um stuðningsaðgerðir.
  4. Jöfnun flutningskostnaðar.
  5. Byggðastofnun.
  6. Vaxtarsamninga við sveitarfélög.

35. Sýslumenn og hreppstjóra.

36. Kosningar:

  1. Kjör til forseta Íslands, kosningar til Alþingis og sveitarstjórna, þjóðaratkvæðagreiðslur og aðrar almannakosningar sem eigi ber undir annað ráðuneyti.
  2. Fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og upplýsingaskyldu þeirra.

37. Málefni sjóða og stofnana sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.

38. Landhelgisgæslu Íslands.

5. gr.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti fer með mál er varða:

1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.

2. Fræðslumál, þar á meðal:

  1. Leikskóla.
  2. Grunnskóla.
  3. Framhaldsskóla.
  4. Háskóla.
  5. Tónlistarskóla.
  6. Framhaldsfræðslu og málefni Fræðslusjóðs.
  7. Listaskóla.
  8. Námskrárgerð.
  9. Námsgögn.
  10. Námsmat.
  11. Vinnustaðanámssjóð.
  12. Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra.
  13. Úrskurðarnefnd vegna kostnaðar við skólagöngu fósturbarna.
  14. Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema.
  15. Menntamálastofnun.

3. Námsaðstoð, þar á meðal:

  1. Námslán.
  2. Námsstyrki.
  3. Lánasjóð íslenskra námsmanna.
  4. Málskotsnefnd Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
  5. Námsstyrkjanefnd.

4. Vísindamál, þar á meðal:

  1. Rannsóknastarfsemi, einkum á sviði grunnrannsókna.
  2. Vísindastarfsemi sem eigi ber undir annað ráðuneyti.
  3. Opinberan stuðning við vísindastarfsemi.
  4. Vísinda- og tækniráð.
  5. Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum að Keldum.
  6. Rannsóknamiðstöð Íslands.

5. Safnamál, þar á meðal:

  1. Bókasöfn, utan bókasafna prestakalla, þ.m.t. Landsbókasafn Íslands.
  2. Skjalasöfn, þ.m.t. málefni Þjóðskjalasafns Íslands.
  3. Listasöfn, þ.m.t. málefni Listasafns Íslands.
  4. Minjasöfn, þ.m.t. Þjóðminjasafn Íslands og Náttúruminjasafn Íslands.
  5. Safnasjóð.

6. Menningarminjar, þar á meðal:

  1. Varðveislu menningararfs.
  2. Skil menningarverðmæta til annarra landa.
  3. Verndarsvæði í byggð.
  4. Minjastofnun Íslands.

7. Listir og menningu, þar á meðal:

  1. Bókmenntir.
  2. Myndlist.
  3. Listskreytingar opinberra bygginga.
  4. Sviðslist.
  5. Tónlist, þ.m.t. málefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og málefni tónlistarsjóðs.
  6. Kvikmyndir, þ.m.t. málefni Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og Kvikmyndasafns Íslands.
  7. Starfslaun listamanna.
  8. Stuðning við listir og kynningu íslenskrar listar innanlands og utan.
  9. Miðstöð íslenskra bókmennta og bókmenntasjóð.
  10. Listskreytingasjóð.
  11. Þjóðleikhúsið.
  12. Íslenska dansflokkinn.

8. Höfundarétt, þar á meðal:

  1. Fylgiréttargjald samkvæmt höfundalögum og lögum um verslunaratvinnu.
  2. Úrskurðarnefnd höfundaréttarmála.

9. Íslensk fræði, þar á meðal:

  1. Íslenska tungu.
  2. Íslenskt táknmál.
  3. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
  4. Örnefni og bæjanöfn.
  5. Örnefnanefnd.

10. Fjölmiðla, þar á meðal:

  1. Mynd- og hljóðmiðla.
  2. Netmiðla.
  3. Prentmiðla.
  4. Eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum.
  5. Ríkisútvarpið.
  6. Fjölmiðlanefnd.

11. Ábyrgðarreglur og efnisréttindi á netinu, þ.m.t. höfundarétt.

12. Íþróttamál, þar á meðal:

  1. Málefni þjóðarleikvanga.
  2. Frjáls félagasamtök.
  3. Sjóði.
  4. Íslenskar getraunir.
  5. Launasjóð stórmeistara í skák og málefni Skákskóla Íslands.

13. Æskulýðsmál, þar á meðal:

  1. Æskulýðsráð ríkisins.
  2. Æskulýðssjóð.
  3. Frjáls félagasamtök.

14. Lögvernduð starfsheiti, þar á meðal:

  1. Starfsréttindi bókasafns- og upplýsingafræðinga.
  2. Lögverndun starfsréttinda leik-, grunn- og framhaldsskólakennara.
  3. Starfsréttindi náms- og starfsráðgjafa.
  4. Viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi.

15. Erlent samstarf á sviði menntunar, menningar og vísinda.

16. Annað, þar á meðal:

  1. Félagsheimili.
  2. Félagsstofnun stúdenta við Háskóla Íslands.
  3. Grænlandssjóð.

6. gr.

Umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

Umhverfis- og auðlindaráðuneyti fer með mál er varða:

1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.

2. Náttúruvernd, þar á meðal:

  1. Líffræðilega fjölbreytni, svo sem verndun vistkerfa, búsvæða, tegunda og erfðaefnis, þ.m.t. í hafi.
  2. Vernd jarðmyndana.
  3. Verndarsvæði í hafi til varðveislu náttúruminja eða sérstakra vistkerfa á hafsbotni til að upp­fylla alþjóðlegar skuldbindingar sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið fer með fram­kvæmd á.
  4. Friðlýst svæði, þ.m.t. málefni Þingvallaþjóðgarðs, Vatnajökulsþjóðgarðs og annarra þjóð­garða.
  5. Svæði sem njóta verndar samkvæmt sérlögum vegna náttúru eða landslags, þ.m.t. málefni Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn.
  6. Sinubrennur og meðferð elds á víðavangi.
  7. Úrbætur og uppbyggingu á aðstöðu til móttöku ferðamanna í þjóðgörðum og friðlýstum svæðum.
  8. Landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.

3. Skógrækt, landgræðslu og varnir gegn landbroti, þar á meðal:

  1. Gróður- og jarðvegsvernd.
  2. Endurheimt vistkerfa, þ.m.t. votlendis.
  3. Landgræðslu ríkisins.
  4. Skógræktina.

4. Eftirlit með timbri og timburvöru.

5. Rannsóknir og skráningu upplýsinga um náttúru landsins, hafsins og hafsbotnsins, þar á meðal:

  1. Umhverfisrannsóknir og umhverfisvöktun.
  2. Rannsóknir á jarðrænum auðlindum á landi og á hafsbotni öðrum en olíu og ráðgjöf um nýtingu þeirra, þ.m.t. málefni Íslenskra orkurannsókna.

6. Söfnun upplýsinga um umhverfis- og auðlindamál og sjálfbærni á norðurslóðum, þ.m.t. málefni Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar.

7. Stjórn vatnamála og ráðgjöf um nýtingu vatns.

8. Mengunarvarnir, þar á meðal:

  1. Hljóðvist.
  2. Mengun hafs og stranda, vatns og jarðvegs.
  3. Meðhöndlun úrgangs og úrvinnslugjald, þ.m.t. málefni Úrvinnslusjóðs.
  4. Fráveitur.
  5. Loftgæði.

9. Umhverfisábyrgð.

10. Loftslagsvernd, þar á meðal:

  1. Losun gróðurhúsalofttegunda.
  2. Viðskipti með losunarheimildir.
  3. Skráningarkerfi gróðurhúsalofttegunda og losunarheimilda.

11. Hollustuhætti.

12. Efni og efnavörur.

13. Skipulagsmál, þar á meðal:

  1. Landsskipulagsstefnu.
  2. Skipulag haf- og strandsvæða.
  3. Skipulagsstofnun.

14. Sjálfbæra þróun, þar á meðal:

  1. Stefnumörkun um sjálfbæra þróun og ráðgjöf um nýtingu auðlinda.
  2. Viðmið um sjálfbæra nýtingu auðlinda.

15. Mat á umhverfisáhrifum áætlana og framkvæmda.

16. Upplýsingarétt um umhverfismál.

17. Landupplýsingar og grunnkortagerð, þ.m.t. málefni Landmælinga Íslands.

18. Mannvirki, þar á meðal:

  1. Eftirlit með mannvirkjum og gerð þeirra.
  2. Brunavarnir.
  3. Eftirlit með byggingarvörum.
  4. Eftirlit með öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga í mannvirkjum.
  5. Mannvirkjastofnun.

19. Veður og náttúruvá, þar á meðal:

  1. Veðurþjónustu.
  2. Vöktun á náttúruvá.
  3. Varnir gegn ofanflóðum.
  4. Rannsóknir og vöktun á vatnafari landsins.
  5. Rannsókn á orsökum ofanflóðs og afleiðingum þess ef manntjón hlýst af.
  6. Veðurstofu Íslands.

20. Veiðistjórnun og alþjóðaverslun með villt dýr og plöntur, þar á meðal:

  1. Stjórnun veiða villtra fugla og villtra spendýra, annarra en sjávarspendýra.
  2. Vernd og friðun villtra dýra og villtra fugla.
  3. Alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna í útrýmingarhættu.

21. Erfðabreyttar lífverur.

22. Framkvæmd alþjóðasamninga um umhverfismál.

23. Áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

24. Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur.

25. Umhverfisstofnun.

26. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

7. gr.

Utanríkisráðuneyti.

Utanríkisráðuneyti fer með mál er varða:

1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.

2. Utanríkismál, þar á meðal:

  1. Skipti forseta Íslands og annarra þjóðhöfðingja.
  2. Sendiráð, fastanefndir og ræðisskrifstofur Íslands erlendis.
  3. Sendiráð og ræðisskrifstofur erlendra ríkja á Íslandi.
  4. Skipti við erlend ríki, þ.m.t. norræna samvinnu.
  5. Réttindi Íslendinga og íslenska hagsmuni erlendis.
  6. Samninga við önnur ríki og gerð þeirra og framkvæmd tiltekinna samninga, sbr. m.a. lög nr. 90/1994, 57/2000, 93/2008 og 58/2010.
  7. Aðild Íslands að alþjóðlegum samtökum, stofnunum, ráðstefnum og fundum er varða opin­bera hagsmuni og eigi ber undir annað ráðuneyti samkvæmt ákvæðum þessa úrskurðar eða eðli máls. Friðhelgi og forréttindi alþjóðastofnana.
  8. Diplómatísk vegabréf, þjónustuvegabréf og áritun vegabréfa.
  9. Kynningu Íslands og íslenskra efna með öðrum þjóðum nema slík mál séu lögð til annars ráðuneytis.
  10. Íslandsstofu.
  11. Varnarmál, aðild að Atlantshafsbandalaginu (NATO), varnarsamning Íslands og Banda­ríkjanna, samskipti og samstarf við erlend ríki, hermálayfirvöld og alþjóðastofnanir á sviði öryggis- og varnarmála, varnarsvæði, öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli og önnur öryggis­svæði, þ.m.t. skipulags- og mannvirkjamál, rekstur mannvirkja og eigna Atlantshafs­bandalagsins á Íslandi, þ.m.t. íslenska ratsjár- og loftvarnakerfið (IADS).
  12. Útflutningsverslun.
  13. Undirbúning og framkvæmd viðskiptasamninga.
  14. Skipti Íslands við alþjóðleg viðskiptasamtök.
  15. Vörusýningar erlendis.
  16. Þróunarsamvinnu, friðargæslu og neyðarhjálp.
  17. Hafréttarmál.

8. gr.

Velferðarráðuneyti.

Velferðarráðuneyti fer með mál er varða:

1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.

2. Félags- og fjölskyldumál, þar á meðal:

  1. Barnavernd.
  2. Barnaverndarstofu.
  3. Málefni fatlaðs fólks.
  4. Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga.
  5. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.
  6. Málefni aldraðra.
  7. Málefni innflytjenda og flóttafólks.
  8. Fjölmenningarsetur.
  9. Félagslega aðstoð.
  10. Greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.
  11. Félagsþjónustu sveitarfélaga.
  12. Ráðgjöf og úrræði vegna fjármála heimilanna, þ.m.t. greiðsluaðlögun einstaklinga.
  13. Umboðsmann skuldara.
  14. Ættleiðingarstyrki.
  15. Orlof húsmæðra.

3. Almannatryggingar, þar á meðal:

  1. Lífeyristryggingar og eftirlaun aldraðra.
  2. Tryggingastofnun ríkisins.
  3. Sjúkratryggingar.
  4. Sjúklingatryggingu.
  5. Slysatryggingar.
  6. Sjúkratryggingastofnun.
  7. Fjárhagsaðstoð við lifandi líffæragjafa.

4. Heilbrigðisþjónustu, þar á meðal:

  1. Heilsugæslu.
  2. Sjúkrahús.
  3. Heilbrigðisstofnanir.
  4. Sérhæfða heilbrigðisþjónustu utan stofnana.
  5. Endurhæfingarstarfsemi og meðferðarstofnanir.
  6. Lyf.
  7. Ávana- og fíkniefni.
  8. Lækningatæki.
  9. Lyfjastofnun.
  10. Lyfjagreiðslunefnd.
  11. Tæknifrjóvgun.
  12. Sjúkraskrár og gagnasöfn á heilbrigðissviði.
  13. Réttindi sjúklinga.
  14. Starfsréttindi í heilbrigðisþjónustu.
  15. Embætti landlæknis.
  16. Heyrnar- og talmeinastöð.
  17. Hjúkrunarheimili.
  18. Dvalarheimili.
  19. Dagdvöl aldraðra.
  20. Framkvæmdasjóð aldraðra.

5. Lýðheilsu og forvarnir, þar á meðal:

  1. Heilsueflingu.
  2. Áfengis- og vímuvarnir.
  3. Slysavarnir.
  4. Sóttvarnir.
  5. Tóbaksvarnir.
  6. Geislavarnir.
  7. Geislavarnir ríkisins.

6. Lífvísindi og lífsiðfræði, þar á meðal:

  1. Vísindarannsóknir á heilbrigðissviði.
  2. Vísindasiðanefnd.
  3. Lífsýnasöfn.
  4. Líffæragjafir og líffæraígræðslu.
  5. Ákvörðun dauða, dánarvottorð og krufningar.

7. Húsnæðismál, þar á meðal:

  1. Húsnæðislán.
  2. Greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga.
  3. Greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði.
  4. Íbúðalánasjóð.
  5. Húsaleigumál.
  6. Húsnæðisbætur.
  7. Húsnæðissamvinnufélög og byggingarsamvinnufélög.
  8. Almennar íbúðir.
  9. Húsnæðissjálfseignarstofnanir.
  10. Húsnæðismálasjóð.
  11. Fjöleignarhús.
  12. Frístundabyggð.
  13. Kærunefnd húsamála.

8. Vinnumál, þar á meðal:

  1. Réttindi og skyldur á vinnumarkaði.
  2. Starfsmannaleigur.
  3. Aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
  4. Vinnueftirlit ríkisins.
  5. Vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
  6. Félagsdóm.
  7. Vinnumarkaðsaðgerðir.
  8. Sáttastörf í vinnudeilum.
  9. Ríkissáttasemjara.
  10. Atvinnuleysistryggingar.
  11. Atvinnutengda starfsendurhæfingu.
  12. Atvinnuréttindi útlendinga.
  13. Ábyrgð á launum við gjaldþrot.
  14. Fæðinga- og foreldraorlof.
  15. Vinnumálastofnun.
  16. Félagsmálaskóla alþýðu.

9. Jafnréttismál, þar á meðal:

  1. Jafnrétti kynjanna.
  2. Jafnréttisstofu.
  3. Kærunefnd jafnréttismála.
  4. Jafnrétti á vinnumarkaði.
  5. Jafnréttissjóð Íslands.

10. Annað, þar á meðal:

  1. Græðara.
  2. Kynáttunarvanda.
  3. Fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir.
  4. Úrskurðarnefnd um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir.
  5. Úrskurðarnefnd velferðarmála.

9. gr.

Ágreiningur.

Málefni sem eigi er getið í 1.-8. gr. skulu lögð til ráðuneytis þar sem þau eðli sínu samkvæmt eiga heima.

Nú leikur vafi á um, eða ágreiningur rís um, hvaða ráðuneyti skuli með mál fara og sker forsætis­ráðherra þá úr.

10. gr.

Gildistaka.

Forsetaúrskurður þessi, sem á sér stoð í 15. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, og 4. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi ákvæði eldri forsetaúrskurðar nr. 71 frá 25. maí 2013 um skiptingu stjórnarmálefna á milli ráðu­neyta í Stjórnarráði Íslands, með síðari breytingum. 

Gjört á Bessastöðum, 11. janúar 2017. 

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Bjarni Benediktsson.


A deild - Útgáfud.: 11. janúar 2017