Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 725/2016

Nr. 725/2016 12. ágúst 2016

GJALDSKRÁ
Ferðamálastofu.

1. gr.

Gjöld skv. 27. gr. laga um skipan ferðamála nr. 73/2005.

Fyrir útgáfu starfsleyfa og skráningu á starfsemi skal greiða:

  Ferðaskrifstofuleyfi 30.000 kr.
  Ferðaskipuleggjendaleyfi 20.000 kr.
  Skráning á starfsemi 15.000 kr.

2. gr.

Gildistaka.

Gjaldskrá þessi, sem sett er samkvæmt 27. gr. laga um skipan ferðamála nr. 73/2005, staðfestist hér með til að öðlast gildi frá 1. september 2016. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1228/2005.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. ágúst 2016.

Ragnheiður Elín Árnadóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Sigrún Brynja Einarsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 26. ágúst 2016