Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 177/2021

Nr. 177/2021 19. febrúar 2021

REGLUGERÐ
um (10.) breytingu á reglugerð nr. 726/2020, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2020/2021.

1. gr.

Við reglugerðina bætist eftirfarandi ákvæði til bráðabirgða:

Óheimilt er að bjóða krókaaflamark í skiptum fyrir loðnu á skiptimarkaði samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. febrúar 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 22. febrúar 2021