Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 579/2018

Nr. 579/2018 17. maí 2018

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1990 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS-staðal 7.

1. gr.

Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 101/2018, frá 27. apríl 2018, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1990 frá 6. nóvember 2017 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS-staðal 7.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2017/1990 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 33/2018, 17. maí 2018, bls. 426. 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðu­reikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. maí 2018.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Harpa Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 4. júní 2018