1. gr.
Gildissvið.
Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem reikna eiginfjárgrunn, eða eftir atvikum hæft fjármagn, í samræmi við lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
2. gr.
Útreikningur á eiginfjárgrunni og hæfu fjármagni.
Fjármálafyrirtæki sem skylt er að reikna eiginfjárgrunn, eða eftir atvikum hæft fjármagn, vegna eiginfjárkrafna skal fylgja ákvæðum reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 241/2014, með síðari breytingum, sbr. 3. gr.
Fjármálafyrirtæki sem skylt er að reikna eiginfjárgrunn, eða eftir atvikum hæft fjármagn, vegna eiginfjárkrafna skal við útreikninga draga frá viðbótarfrádráttarlið í samræmi við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 523/2014, sbr. 3. gr.
3. gr.
Innleiðing reglugerða.
Með vísan til 2. gr. gilda eftirtaldar reglugerðir hér á landi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 241/2014 frá 7. janúar 2014 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir kröfur vegna eiginfjárgrunns stofnana, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 59.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 523/2014 frá 12. mars 2014 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla til ákvörðunar á því hvað myndar nána samsvörun á milli virðis sértryggðs skuldabréfs stofnunar og virðis eigna stofnunarinnar, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 65. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020, bls. 289-290.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/488 frá 4. september 2014 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) nr. 241/2014 að því er varðar kröfur vegna eiginfjárgrunns fyrirtækja á grundvelli fasts kostnaðar, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 59. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020, bls. 250‑253.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/850 frá 30. janúar 2015 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) nr. 241/2014 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir kröfur vegna eiginfjárgrunns stofnana, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 59. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020, bls. 257-263.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/923 frá 11. mars 2015 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) nr. 241/2014 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir kröfur vegna eiginfjárgrunns stofnana, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 59. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020, bls. 264-272.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2176 frá 12. nóvember 2020 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) nr. 241/2014 að því er varðar frádrátt hugbúnaðareigna frá liðum almenns eigin fjár þáttar 1, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 302/2021 frá 29. október 2021.
Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 57/2015, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 241/2014 og 2020/2176 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):
- https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32014R0241, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 74, þann 14. mars 2014, bls. 8-26;
- https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32020R2176, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 433, þann 22. desember 2020, bls. 27-29.
4. gr.
Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 4.-11., 13., 15.-17., 19.-22., 83. og 84. tölul. 2. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, öðlast þegar gildi. Með gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 507/2017 um tæknilega staðla vegna eiginfjárgrunns.
Seðlabanka Íslands, 7. október 2022.
|
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. |
Rannveig Júníusdóttir framkvæmdastjóri. |
|