Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1392/2019

Nr. 1392/2019 27. desember 2019

GJALDSKRÁ
fyrir heilbrigðis-, mengunarvarna- og matvælaeftirlit á Vesturlandssvæði.

1. gr.

Af starfsemi sem háð er starfsleyfi eða eftirliti Heilbrigðiseftirlits Vesturlandssvæðis, sam­kvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerðum settum með stoð í þeim og matvælalögum nr. 93/1995 með síðari breytingum, er aðildarsveitarfélögunum heimilt að inn­heimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

2. gr.

Tímagjald                                                                   kr.     15.800

Gjald vegna rannsóknar pr. sýni í eftirlitsáætlun er skv. útlögðum kostnaði.

Af eftirlitsskyldri starfsemi er aðildarsveitarfélögunum heimilt að innheimta árlegt gjald af starf­semi eins og fram kemur á fylgiskjali, viðauka A, með gjaldskrá þessari, enda fari fram reglu­bundið eftirlit með starfseminni, skv. eftirlitsáætlun.

Sé starfsemi rekin skemur en 6 mánuði á ári eða er að öðru leyti takmörkuð með svipuðum hætti er heilbrigðisnefnd heimilt að lækka gjaldið.

Ef starfsemi hefur haft samning við faggilta skoðunarstofu síðastliðin þrjú ár, hefur haft vottað gæðakerfi síðastliðin þrjú ár eða hefur rekið innra eftirlit með starfsemi sinni síðastliðin þrjú ár, sem heilbrigðisnefnd viðurkennir, er heilbrigðisnefnd heimilt að lækka gjöld samkvæmt þessari grein.

Ef einungis hluti margþætts eftirlits með starfsemi fer fram, er heimilt að lækka eftirlitsgjald, sem því nemur.

3. gr.

Af starfsleyfisskyldri starfsemi, er aðildarsveitarfélögunum heimilt að innheimta gjald fyrir starfsleyfi eins og hér segir:

Endurnýjun starfsleyfis:
  Starfsleyfisgjald eitt tímagjald
  og gjald skv. reikningi vegna undirbúnings,  
  ferðar, úttektar og frágangs  
  ásamt auglýsingakostnaði ef við á  
     
Tóbakssöluleyfi eitt tímagjald
     
Ný starfsemi:
  Starfsleyfisgjald eitt tímagjald
  og gjald skv. reikningi vegna undirbúnings,  
  og eftirlitsgjald viðkomandi fyrirtækjaflokks  
  ásamt auglýsingakostnaði ef við á  
     
Útgáfa vottorða eitt tímagjald
     
Önnur starfsleyfi sem ekki eru í eftirlitsáætlun:
  Starfsleyfisgjald eitt tímagjald
     
Eftirlitsgjald vegna tóbakssölu hálft tímagjald

4. gr.

Gjald skv. 3. gr. greiðist við afhendingu leyfisbréfs.

5. gr.

Fyrir vottorð sem Heilbrigðiseftirlit Vesturlandssvæðis gefur út samkvæmt fyrirliggjandi gögnum og fyrir eiturbeiðnir skal greiða eitt tímagjald.

Gjald fyrir þjónustuverkefni og önnur sérstök verkefni greiðist samkvæmt reikningi.

Ef um aukin eftirlitsverkefni er að ræða, umfram reglubundið eftirlit og sýnatöku sem gert er ráð fyrir í eftirlitsáætlun Heilbrigðiseftirlits Vesturlandssvæðis er heilbrigðiseftirlitinu heimilt að gera sérstakan reikning vegna þeirra eins og um þjónustuverkefni sé að ræða.

6. gr.

Af starfsemi, sem upp er talin í viðauka með lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunar­varnir og Heilbrigðiseftirlit Vesturlandssvæðis hefur eftirlit með samkvæmt samningi við Umhverf­is­stofnun, skal greiða gjöld samkvæmt 2. gr.

7. gr.

Aðildarsveitarfélögin, eða aðili sem þau tilnefna, annast innheimtu eftirlitsgjalda. Heilbrigðis­eftirlit Vesturlandssvæðis innheimtir önnur gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, s.s. fyrir leyfi, vott­orð, eitur­beiðnir og þjónustuverkefni.

Heilbrigðiseftirlitið gerir skrá yfir eftirlitsskylda starfsemi í samræmi við viðauka A sem fylgir gjald­skrá þessari og sendir viðkomandi aðildarsveitarfélagi.

Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunar­varnir.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

8. gr.

Gjalddagi gjalda samkvæmt 2. gr. er 10 dögum eftir útgáfu reikninga og eindagi 10 dögum seinna. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga auk áfallins innheimtu­kostn­aðar.

9. gr.

Þegar sami aðili rekur fleiri en eina tegund starfsemi sem fellur undir gjaldskrá þessa, á einum og sama stað, er heimilt að innheimta eitt árlegt gjald, þá í þeim flokki sem hærri er.

10. gr.

Innheimt gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari skulu renna til reksturs heilbrigðiseftirlitsins skv. 46. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum.

11. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af aðildarsveitarfélögunum skv. 46. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1363/2018 fyrir heilbrigðis-, mengunarvarna- og matvælaeftirlit á Vestur­lands­svæði.

Heilbrigðiseftirliti Vesturlands, 27. desember 2019.

Helgi Helgason framkvæmdastjóri.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 15. janúar 2020