Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 492/2021

Nr. 492/2021 16. apríl 2021

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 971/2009 um árangurstengda tilfærslu starfsþátta í Háskóla Íslands.

1. gr.

1. málsl. töluliðar 1, Stigaleið, í 1. mgr. 4. gr. reglnanna orðast svo: Kennarar með flest rannsókna­stig á ári úr tilteknum flokkum matskerfis Háskóla Íslands (aflstig), sbr. töflu í lok 7. gr. reglna nr. 1300/2020 um framgang akademísks starfsfólks við Háskóla Íslands, sbr. einnig lið 1, Rannsóknir, í 8. gr. sömu reglna.

 

2. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, eru settar samkvæmt heimild í 5. mgr. 15. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi.

 

Háskóla Íslands, 16. apríl 2021.

 

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 4. maí 2021