Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 928/2015

Nr. 928/2015 16. október 2015

AUGLÝSING
um breytingar á deiliskipulagi Helgafellshverfis í Mosfellsbæ.

Samþykktar hafa verið eftirtaldar breytingar á deiliskipulagi 1. áfanga Helgafellshverfis eftir meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:

Vefarastræti 1-5.
Breytingar felast í fjölgun íbúða úr 21 í 23, fækkun stigahúsa úr þremur í tvö, tilslökun á kröfum um bílastæði þannig að fyrir hverja íbúð 70 m² og minni (var 60 m²) skuli vera 1,5 stæði innan lóðar sem megi öll vera ofanjarðar og loks stækkun lóðar um rúmlega 130 m². Breytingin var fullnaðarafgreidd á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 2. október 2015.

Vefarastræti 8-14 og 16-22.
Breytingar felast í fjölgun íbúða úr 32 í 39 á hvorri lóð eða um samtals 14 íbúðir og tilslökun á kröfum um bílastæði þannig að fyrir hverja íbúð 70 m² og minni (var 60 m²) skuli vera 1,5 stæði innan lóðar sem megi öll vera ofanjarðar. Breytingin var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 26. ágúst 2015.

Ofangreindar breytingar á deiliskipulagi hafa hlotið tilskilda meðferð samkvæmt skipulagslögum og öðlast þær þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 16. október 2015,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 19. október 2015