Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 536/2025

Nr. 536/2025 5. maí 2025

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1237/2023 um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1698 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 að því er varðar kröfur um málsmeðferð er varða viðurkenningu á eftirlitsyfirvöldum og eftirlitsaðilum sem eru til þess bær að annast eftirlit með lífrænt vottuðum rekstraraðilum og hópum rekstraraðila og með lífrænt ræktuðum vörum í þriðju löndum og að því er varðar reglur um eftirlit með þeim og eftirlit og aðrar aðgerðir sem þessi eftirlitsyfirvöld og eftirlitsaðilar eiga að annast.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 3. tölul., svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3095 frá 29. júlí 2024 um breyt­ingu á framseldri reglugerð (ESB) 2021/1698 að því er varðar vottun tiltekinna rekstraraðila og hópa rekstraraðila í þriðju löndum og eftirlit sem eftirlitsyfirvöld og eftirlitsaðilar inna af hendi með lífrænt ræktuðum vörum þeirra. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 49/2025 frá 14. mars 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 558.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995, og 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, og lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvegaráðuneytinu, 5. maí 2025.

 

Hanna Katrín Friðriksson.

Svava Pétursdóttir.


B deild - Útgáfud.: 23. maí 2025