Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 725/2020

Nr. 725/2020 20. júlí 2020

REGLUGERÐ
um ráðstöfun 4.000 lesta af viðbótaraflaheimildum í makríl.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um úthlutun viðbótaraflaheimilda í makríl samkvæmt ákvæði 10. gr. b. í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

 

2. gr.

Heimilt er að úthluta allt að 4.000 lestum af viðbótaraflaheimildum í makríl ár hvert til skipa í B-flokki gegn greiðslu gjalds. Úthluta skal allt að 50 lestum í senn. Ekkert skip getur fengið úthlutað viðbótaraflaheimildum fyrr en skip hefur veitt 75% af úthlutuðu aflamarki í makríl. Þessi takmörkun gildir ekki fyrir skip sem fá úthlutað 30 tonnum af aflamarki í makríl eða minna.

Eftir 15. september skal úthluta til skipa í A-flokki því sem eftir er gegn greiðslu gjalds.

 

3. gr.

Úthlutun viðbótaraflaheimilda samkvæmt þessari reglugerð í annað sinn eða síðar er bundin því skilyrði að skip hafi veitt a.m.k. 50% af áður úthlutuðum viðbótaraflaheimildum.

 

4. gr.

Óheimilt er framselja aflaheimildir í makríl af skipi í B-flokki sem hefur fengið úthlutað samkvæmt reglugerð þessari á veiðitímabilinu. Heimilt er að flytja allt að 10% af úthlutuðum viðbótaraflaheimildum skips yfir á næsta ár.

 

5. gr.

Fiskistofa annast úthlutun viðbótaraflaheimilda gegn greiðslu gjalds á grundvelli umsókna og skal úthluta aflaheimildum vikulega á grundvelli umsókna sem borist hafa undanfarandi viku.

Ef umsóknir um viðbótaraflaheimildir eru umfram þær aflaheimildir sem til ráðstöfunar eru skal Fiskistofa skipta því sem til ráðstöfunar er jafnt á milli umsækjenda, enda hafi umsækjandi ekki sótt um minna magn en því nemur. Verð á viðbótaraflaheimildum í makríl skal nema sömu fjárhæð og veiðigjald fyrir makríl og skal það greitt Fiskistofu fyrir úthlutun. Hafi gjald ekki verið greitt í síðasta lagi á öðrum virkum degi úthlutunarviku fellur réttur útgerðar til úthlutunar á grundvelli umsóknarinnar niður.

Á heimasíðu Fiskistofu skal vikulega birta upplýsingar um magn makríls sem til ráðstöfunar er.

Skip í A-flokki skulu sækja um sinn hlut af viðbótaraflaheimildum til Fiskistofu fyrir 10. september ár hvert og skal Fiskistofa úthluta því sem eftir er jafnt á milli umsækjenda 16. september ár hvert.

 

6. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 10. gr. b. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 606/2019 um ráðstöfun 4.000 lesta af viðbótaraflaheimildum í makríl.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. júlí 2020,

 

Kristján Þór Júlíusson.

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Arnór Snæbjörnsson.


B deild - Útgáfud.: 21. júlí 2020