1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/760 frá 8. apríl 2022 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2021/2306 að því er varðar umbreytingarákvæði vegna skoðunarvottorða sem eru gefin út í Úkraínu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 206/2022, frá 8. júlí 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53, frá 11. nóvember 2022, bls. 120.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 1. nóvember 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
|