Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 522/2020

Nr. 522/2020 26. maí 2020

REGLUGERÐ
um (14.) breytingu á reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH).

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast þrír nýir töluliðir, svohljóðandi:

60)

 

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/957 frá 11. júní 2019 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi (3,3,4,4,5,5,6,6,7,7,8,8,8-trídekaflúoróoktýl)sílanetríóli og TDFA) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfis­veitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 296/2019 frá 13. desember 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5 frá 30. janúar 2020, bls. 302-304.
61)   Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1691 frá 9. október 2019 um breytingu á V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 30/2020 frá 20. mars 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 7. maí 2020, bls. 68-70.
62)   Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1692 frá 9. október 2019 um beitingu tiltekinna ákvæða um skráningu og samnýtingu gagna í reglugerð Evrópu­þingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 eftir að síðasti eindagi skráningar efna í skráningar­bið er liðinn, sem vísað er til í tölulið 12zzzzzzc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 11/2020 frá 7. febrúar 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­­tíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 23. apríl 2020, bls. 655-657.

 

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/957 frá 11. júní 2019 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi (3,3,4,4,5,5,6,6,7,7,8,8,8-trídekaflúoróoktýl)sílanetríóli og TDFA) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfis­veitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)).
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1691 frá 9. október 2019 um breytingu á V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)).
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1692 frá 9. október 2019 um beitingu tiltekinna ákvæða um skráningu og samnýtingu gagna í reglugerð Evrópu­þingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 eftir að síðasti eindagi skráningar efna í skrán­ingar­bið er liðinn.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 26. maí 2020.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.


B deild - Útgáfud.: 29. maí 2020