Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 522/2022

Nr. 522/2022 4. maí 2022

AUGLÝSING
um (1.) breytingu á auglýsingu nr. 505/2022 um (3.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2021/2022.

1. gr.

Svohljóðandi breytingar eru gerðar á 1. gr. auglýsingarinnar:

  1. Eftirfarandi millifyrirsögn breytist: „Súðavíkurhreppur (breyting á almennum skilyrðum, breyting á viðmiðun um úthlutun, löndunarskylda innan byggðarlags)“ og verður: Súðavíkur­hreppur (breyting á almennum skilyrðum, breyting á viðmiðun um úthlutun, vinnslukylda innan byggðarlags).
  2. Stafliður c) vegna Súðavíkurhrepps fellur niður.
  3. Eftirfarandi millifyrirsögn breytist: „Tálknafjarðarhreppur (breyting á viðmiðun úthlutunar, niðurfelling vinnsluskyldu)“ og verður: Tálknafjarðarhreppur (breyting á viðmiðun úthlut­unar, vinnsluskylda innan Vestur-Barðastrandarsýslu).

 

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 4. maí 2022.

 

F. h. r.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Jón Þrándur Stefánsson.


B deild - Útgáfud.: 4. maí 2022