Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1403/2020

Nr. 1403/2020 23. desember 2020

GJALDSKRÁ
fyrir hundahald í Dalvíkurbyggð.

1. gr.

Við skráningu hunda skal greiða skráningargjald kr. 3.119.

 

2. gr.

Árlega skal greiða eftirlitsgjald vegna hunda kr. 9.596. Gjaldið á að standa undir kostnaði vegna ormahreinsunar, en ef framvísað er staðfestingu á að ormahreinsun hafi verið framkvæmd lækkar gjaldið um 50%.

 

3. gr.

Af hundum sem handsamaðir eru og fluttir í gæludýrageymslu Dalvíkurbyggðar samkvæmt 14. gr. samþykktar um hundahald í Dalvíkurbyggð nr. 16/2013 skal eigandi greiða handsömunar-, fóður- og vistunargjald áður en honum er afhentur hundurinn á ný. Ef hundur er ekki örmerktur samkvæmt 9. gr. sömu samþykktar ber einnig að greiða þann kostnað gegn beiðni til dýralækna sem fram­kvæma slíkt.

 

4. gr.

Við afhendingu handsamaðs hunds ber að innheimta kr. 5.996 vegna handsömunar og gjald fyrir fóður og vistun samkvæmt kostnaði. Gjald fyrir örmerkingu hunda fer eftir gjaldskrá viðkom­andi dýralæknis hverju sinni.

 

5. gr.

Gjaldskrá þessi sem samin er og samþykkt af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar, með heimild í 5. mgr. 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu.

 

6. gr.

Gjaldskráin uppreiknaðist haustið 2020 til hækkunar um 2,7% samkvæmt ákvörðun sveitar­stjórnar.

Samþykkt í landbúnaðarráði Dalvíkurbyggðar 24. september 2020 og í sveitarstjórn Dalvíkur­byggðar 24. nóvember 2020.

Gjaldskrá þessi öðlast gildi 1. janúar 2021.

 

Dalvíkurbyggð, 23. desember 2020.

 

Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2020