Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 287/2024

Nr. 287/2024 15. febrúar 2024

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 845/2014, um innkaup stofnana á sviði varnar- og öryggismála.

1. gr.

10. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Viðmiðunarfjárhæðir vegna skyldu til útboðs, jafnt innanlands sem og á Evrópska efna­hags­svæðinu, skulu vera sem hér segir:

64.640.000 kr. þegar um er að ræða vöru- og þjónustusamninga,
808.084.000 kr. þegar um er að ræða verksamninga.

Samkvæmt reglugerð þessari skal bjóða út öll innkaup sem eru yfir viðmiðunar­fjárhæðum, samkvæmt 1. mgr., í samræmi við þau innkaupaferli sem nánar er kveðið á um í VI. kafla.

Við innkaup undir viðmiðunarfjárhæðum skal kaupandi ávallt gæta hagkvæmni og gera saman­burð meðal sem flestra fyrirtækja. Slíkur samanburður skal jafnan gerður bréflega eða með rafrænni aðferð. Við þessi innkaup skal virða jafnræðisreglu 5. gr. svo og ákvæði 25. gr. um tækniforskriftir.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2510 frá 16. nóvember 2023 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/81/ESB að því er varðar viðmiðunarfjárhæðir vegna vöru-, þjónustu- og verksamninga.

Reglugerðin er sett með heimild í 3. mgr. 7. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 15. febrúar 2024.

 

F. h. r.

Jón Gunnar Vilhelmsson.

Þorsteinn Júlíus Árnason.


B deild - Útgáfud.: 5. mars 2024