Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem hér segir:
Lynghóll, landnr. 125346: Breytingin felur í sér að byggingarreitur stækkar til norðurs. Stærð byggingarreits fyrir breytingu er 732,4 m², verður eftir breytingu 1.066 m². Hámarksstærð frístundahúss verður 130 m² í stað 70 m². Hámarksstærð áhaldahúss verður 70 m² í stað 20 m². Hámarksbyggingarmagn veður 200 m² í stað 90 m².
Ofangreindar breytingar á deiliskipulagi hafa hlotið meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 18. júní 2018,
Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi.
|