Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 385/2017

Nr. 385/2017 21. apríl 2017

GJALDSKRÁ
fyrir þjónustu Náttúrufræðistofnunar Íslands.

1. gr.

Gjald fyrir útselda vinnu sérfræðings.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald samkvæmt gjaldskrá þessari fyrir rannsóknir og ráðgjöf sem falla undir 4. gr. laga nr. 60/1992 um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur samkvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992. Gjald fyrir hverja klukkustund skal vera eftirfarandi án vsk:

  a) Fyrir sérfræðinga I kr. 14.450
  b) Fyrir sérfræðinga II kr. 12.905
  c) Fyrir sérfræðinga III kr. 11.375

2. gr.

Skordýra- og sveppagreiningar.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald fyrir greiningu á skordýrum og sveppum samkvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992.

Gjaldið skal vera kr. 2.800 fyrir skordýragreiningu til almennings.

Gjaldið skal vera kr. 5.500 fyrir sveppagreiningu til almennings.

3. gr.

Útgáfa rita.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald fyrir útgáfu rita samkvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992. Gjald fyrir hvert rit skal vera eftirfarandi án vsk:

  a) Fyrir fjölrit Náttúrufræðistofnunar kr. 1.700
  b) Fyrir Blika kr. 2.000

4. gr.

Önnur þjónusta.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald vegna úgáfu á útflutningsleyfi fyrir rannsóknarsýni samkvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992.

Gjaldið skal vera kr. 40.500.

5. gr.

Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald vegna útgáfu á útflutningsleyfi til almennings fyrir minjagripi og uppstoppuð dýr samkvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992.

Gjaldið skal vera kr. 5.500.

6. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt heimild í 5. gr. laga nr. 60/1992 um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur. Gjaldskráin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 266/2016 fyrir þjónustu Náttúrufræðistofnunar Íslands.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 21. apríl 2017.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Stefán Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 9. maí 2017