Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1094/2022

Nr. 1094/2022 14. september 2022

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús, nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr., í réttri númeraröð:

  1.28 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/579 frá 8. apríl 2022 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.28.
  1.29 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/881 frá 3. júní 2022 um framkvæmd á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.29.
  1.30 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/882 frá 3. júní 2022 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.30.
  1.31 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/1243 frá 18. júlí 2022 um framkvæmd á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.31.
  2.35 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/577 frá 8. apríl 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.35.
  2.36 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/876 frá 3. júní 2022 um framkvæmd 8. gr. a(1) reglugerðar (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.36.
  2.37 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/877 frá 3. júní 2022 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátttöku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.37.
  2.38 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/1231 frá 18. júlí 2022 um framkvæmd á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Belarús og þátt­töku Belarús í árásum Rússa gegn Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.38.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 14. september 2022.

 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Anna Jóhannsdóttir.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 29. september 2022