Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1464/2021

Nr. 1464/2021 6. desember 2021

REGLUGERÐ
um (6.) breytingu á reglugerð nr. 468/2013 um nýtingu afla og aukaafurða.

1. gr.

3. málsliður A-liðar 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Skylt er einnig að hirða og koma með að landi hausa og allan afskurð sem fellur til við vinnslu á makríl, íslenskri sumargotssíld og norsk-íslenskri síld.

 

2. gr.

2. málsliður C-liðar 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Skylt er að hirða og koma með að landi alla grálúðuhausa og grálúðusporða.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 2. mgr. 2. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Reglugerðin öðlast gildi 1. janúar 2022.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 6. desember 2021.

 

Svandís Svavarsdóttir
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 20. desember 2021