Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 509/2017

Nr. 509/2017 2. júní 2017

REGLUR
um tæknilega staðla vegna stórra áhættuskuldbindinga.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem reikna stórar áhættuskuldbindingar í samræmi við ákvæði reglugerðar um varfærniskröfur vegna starfsemi fjármálafyrirtækja, nr. 233/2017.

2. gr.

Ákvörðun heildarfjárhæðar stórra áhættuskuldbindinga.

Við ákvörðun á heildarfjárhæð áhættuskuldbindinga viðskiptavinar eða hóps tengdra viðskipta­manna skal fjármálafyrirtæki fara eftir ákvæðum reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1187/2014 frá 2. október 2014, sbr. 3. gr. þessara reglna.

3. gr.

Birting tæknilegra staðla.

Með vísan til 2. gr. öðlast gildi hér á landi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1187/2014 frá 2. október 2014 um tæknilega eftirlitsstaðla varðandi ákvörðun á heildarfjárhæð stórra áhættuskuldbindinga vegna undirliggjandi eigna viðskiptavinar eða hóps tengdra viðskipta­manna, sem sett er á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013.

Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 57/2015 um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, vísar Fjármálaeftirlitið til birtingar enskrar útgáfu af reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1187/2014 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union): http://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?qid=1464963032041&uri=CELEX:32014R1187, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 324, þann 7. nóvember 2014, bls. 1-5.

4. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar eru settar með heimild í d-lið 3. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Fjármálaeftirlitinu, 2. júní 2017.

Anna Mjöll Karlsdóttir.

Sigurður Freyr Jónatansson.


B deild - Útgáfud.: 7. júní 2017