Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1718/2023

Nr. 1718/2023 28. desember 2023

AUGLÝSING
um afléttingu tímabundinna varnaraðgerða til að fyrirbyggja að fuglaflensa berist í alifugla og aðra fugla í haldi.

1. gr.

Með vísan til þess að smithætta á fuglaflensu fyrir alifugla og aðra fugla í haldi er metin miðlungs hefur ráðherra, að fengnum tillögum Matvælastofnunar, ákveðið að fella úr gildi auglýs­ingu nr. 380/2022 um tímabundnar varnaraðgerðir til að fyrirbyggja að fuglaflensa berist í alifugla og aðra fugla í haldi.

 

2. gr.

Auglýsing þessi er sett með vísan til 8. gr. laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993 og öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 28. desember 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Kolbeinn Árnason.


B deild - Útgáfud.: 22. janúar 2024