Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 543/2018

Nr. 543/2018 29. maí 2018

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1077/2010 um flutning á hættulegum farmi á landi.

1. gr.

Við 2. mgr. 38. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:

  1. Tilskipun 2018/217/ESB frá 31. janúar 2018 um breytingu á tilskipun 2008/68/EB sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 33, 17. maí 2018, bls. 420-423.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 50. gr., 1. mgr. 60. gr. og 5. mgr. 73. gr. umferðar­laga nr. 50/1987, öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 29. maí 2018.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Valgerður B. Eggertsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. maí 2018