Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
1083/2018

Nr. 1083/2018 28. nóvember 2018

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 75/2016 um kröfur og stjórnsýslumeðferð er varða flugvelli samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008.

1. gr.

3. gr. reglugerðarinnar breytist og orðast svo:

Með reglugerð þessari eru eftirfarandi reglugerðir innleiddar:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 139/2014 frá 12. febrúar 2014 um kröfur og stjórn­sýslu­meðferð er varða flugvelli samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 164 frá 11. júní 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 46 frá 20. ágúst 2015, bls. 212.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/401 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 139/2014, að því er varðar flokkun flugbrauta, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2018 frá 31. maí 2018 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 42 frá 28. júní 2018, bls. 156-157.

2. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 56. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 28. nóvember 2018.

F. h. r.

Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir.

Jónas Birgir Jónasson.


B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2018