Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 40/2021

Nr. 40/2021 11. janúar 2021

AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um frest til að skila umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu þinggjalda á árinu 2021.

  1. Frestur til að skila umsóknum um lækkun á fyrirframgreiðslu ársins 2021, sbr. 5. gr. reglu­gerðar nr. 1402/2020, er til 31. maí 2021 vegna lögaðila. Umsóknir ásamt gögnum skulu því í síðasta lagi hafa verið sendar rafrænt á netfangið [email protected] fyrir lok umsóknar­frests.
  2. Forsendur fyrir lækkun fyrirframgreiðslunnar eru þær að skatt- eða gjaldstofnar vegna tekju­ársins 2020 séu a.m.k. 25% lægri en þeir stofnar sem fyrirframgreiðslan ákvarðast af, þ.e. tekju­árið 2019, og að álögð gjöld 2021 muni af þeim sökum að lágmarki verða 100.000 kr. lægri en við álagningu 2020.
  3. Umsækjanda ber að sýna fram á forsendur fyrir lækkun á fyrirframgreiðslu með framlagningu skattframtals 2021 ásamt lögboðnum fylgiskjölum. Ársreikningar skulu fylgja skattframtölum rekstraraðila. Hafi umsækjandi skilað rafrænu framtali 2021 ásamt fylgigögnum er nægilegt að vísa til þess í umsókninni.
  4. Vakin er athygli á því að heimilt er að óska eftir endurupptöku á ákvörðun ríkisskattstjóra innan þriggja mánaða frá dagsetningu úrskurðar.
  5. Auglýsing þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1402/2020 og tekur þegar gildi.

 

Reykjavík, 11. janúar 2021.

 

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 25. janúar 2021