Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 290/2023

Nr. 290/2023 21. mars 2023

AUGLÝSING
um (2.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2022-2023

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 1370/2022, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2022/2023, staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftir­farandi sveitarfélögum:

 

Akureyrarbær vegna Grímseyjar (löndunarskylda innan byggðarlags, niðurfelling vinnslu­skyldu).

Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Grímseyjar með eftirfarandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. sept­ember 2022 til 31. ágúst 2023.
  b) Ákvæði 4. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur niður.
  c) Í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „telst ekki hafa verið landað til vinnslu“ og verður: telst hafa verið landað til vinnslu.

 

Húnaþing vestra (breyting á viðmiðum um úthlutun, löndunarskylda innan byggðarlags, niðurfelling vinnsluskyldu).

Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Hvammstanga með eftir­farandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:
    a. 50% af byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og fengið hafa úthlutun samkvæmt reglugerð nr. 973/2022 vegna aflabrests á rækju í innanverðum Húnaflóa og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2022/2023. Við skipt­ingu þessa 50% byggðakvóta Húnaþings vestra, til ofangreindra skipa, skal miða við meðaltal landaðs botnfiskafla í þorskígildum talið, í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í Hvammstanga­höfn fiskveiðiárið 2021/2022.
    b. 50% af byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022, um úthlutun byggða­kvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2022/2023, miðað við meðaltal landaðs botnfiskafla, í teg­undum sem hafa þorskígildisstuðla, í Hvammstangahöfn fiskveiðiárið 2021/2022.
    c. Skip eiga rétt til úthlutunar úr báðum pottum samkvæmt a- og b-lið, að uppfylltum skil­yrðum.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. september 2022 til 31. ágúst 2023.
  c) Ákvæði 4. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur niður.
  d) Í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „telst ekki hafa verið landað til vinnslu“ og verður: telst hafa verið landað til vinnslu.

 

Kaldrananeshreppur (breyting á almennum skilyrðum, löndunarskylda innan byggðar­lags, vinnsluskylda innan byggðarlags).

Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Drangsness með eftirfarandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt þannig að 30% byggðakvótans skiptist jafnt milli skipa þó ekki meira í þorsk­ígildum talið en viðkomandi bátur landaði í þorskígildum á Drangsnesi á fiskveiði­árinu 2022/2023 og 70% skipt hlutfallslega til sömu skipa af því aflamarki sem fallið hefur til Drangs­ness, miðað við allan landaðan botnfiskafla á Drangsnesi í tegundum sem hafa þorsk­­ígildisstuðla, í þorsk­ígildum talið, á tímabilinu 1. september 2021 til 31. ágúst 2022.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa á Drangsnesi þeim afla sem telja á til byggðakvóta Drangsness og til vinnslu innan Drangs­ness á tímabilinu frá 1. september 2022 til 31. ágúst 2023.

 

Strandabyggð (breyting á viðmiðum um úthlutun, löndunarskylda innan byggðarlags, niðurfelling vinnsluskyldu).

Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Hólmavíkur með eftirfarandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í einstök­um sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal 25% úthlutaðs byggðakvóta skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglu­gerðar­innar og 75% skal skipt hlutfallslega, til sömu skipa, miðað við allan landaðan botnfisk­afla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorsk­ígildum talið innan viðkomandi byggðar­lags á tímabilinu 1. september 2021 til 31. ágúst 2022.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. sept­ember 2022 til 31. ágúst 2023.
  c) Ákvæði 4. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur niður.
  d) Í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „telst ekki hafa verið landað til vinnslu“ og verður: telst hafa verið landað til vinnslu.

 

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 21. mars 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 22. mars 2023