Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1540/2022

Nr. 1540/2022 14. desember 2022

AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um bústofn til eignar í skattframtali 2023.

Eignamat í árslok.

Samkvæmt 2. tl. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skatta­lega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í árs­byrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður, sbr. framangreint.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2022, álagningarárið 2023, vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár:

    kr.    
Mjólkurkýr 140.000
Holdakýr og naut 142.000
Kvígur, 1½ árs og eldri 130.000
Geldneyti 77.000
Kálfar, yngri en ½ árs 14.000
Ær og sauðir 7.800
Hrútar 18.000
Gemlingar 11.500
Geitur 12.000
Hross á 14. vetri og eldri 22.000
Hross á 5. – 13. vetri 50.000
Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri 220.000
Önnur nýtanleg reiðhross 125.000
Verðlaunahross á 5. – 13. vetri 350.000
Kynbótahestar á 5. – 13. vetri 470.000
Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri 600.000
Tryppi á 2. – 4. vetri 16.000
Folöld 11.500
Hænsni, eldri en 6 mánaða 1.080
Varphænsni 6 mánaða og yngri 735
Kjúklingar 300
Endur 1.055
Gæsir 2.115
Kalkúnar 3.165
Gyltur 48.000
Geltir 70.000
Grísir 13.500
Kanínur 5.000
Minkar: Karldýr   5.400
  Kvendýr   3.600
Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri 0

 

Reykjavík, 14. desember 2022.

 

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2022