Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1056/2016

Nr. 1056/2016 29. nóvember 2016

AUGLÝSING
(II) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 641 frá 8. júlí 2016 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2016/2017 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:

Fjarðabyggð.

Ákvæði reglugerðar nr. 641/2016 gilda um úthlutun byggðakvóta Mjóafjarðar og Stöðvarfjarðar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði b-liðar 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru skráð í viðkomandi byggðar­lagi 14. nóvember 2016.
  b) Ákvæði 1. málsl. c-liðar 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í sveitarfélaginu 14. nóvember 2016.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, á þann veg að 37% byggðakvóta í Fjarðabyggð skal skipt jafnt milli þeirra fiski­skipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar, en 63% byggðakvótans í Fjarða­byggð skal skipt hlutfalls­lega á þau sömu skip, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tíma­bilinu 1. september 2015 til 31. ágúst 2016.
  d) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa, þeim afla sem telja á til byggðakvóta, innan viðkomandi byggðarlags til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2016 til 31. ágúst 2017.

Snæfellsbær.

Ákvæði reglugerðar nr. 641/2016 gilda um úthlutun byggðakvóta Hellissands, Rifs, Arnarstapa og Ólafsvíkur með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. c-liðar 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru í eigu eða leigu ein­­staklinga eða lögaðila með heimilisfang í sveitarfélaginu 1. júlí 2016.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til við­kom­andi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2015 til 31. ágúst 2016.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:
    Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitar­­félagsins á tímabilinu frá 1. september 2016 til 31. ágúst 2017.

Grýtubakkahreppur.

Ákvæði reglugerðar nr. 641/2016 gilda um úthlutun byggðakvóta Grenivíkur með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., eftir breytingu sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal 5 þorskígildistonnum úthlutaðs byggðakvóta skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar og 10 þorskígildistonnum skal skipt hlutfallslega til sömu skipa, miðað við úthlutað aflamark á grundvelli afla­hlutdeildar í botnfiski 1. september 2016 í þorskígildum talið.

Húnaþing vestra.

Ákvæði reglugerðar nr. 641/2016 gilda um úthlutun byggðakvóta Hvammstanga með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: 80% af byggðakvóta Húna­þings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og fengið hafa úthlutun samkvæmt reglugerð nr. 675/2009 vegna aflabrests á rækju í innan­verðum Húnaflóa og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 641 frá 8. júlí 2016, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2016/2017. Skipting þessara 80% byggðakvóta Húna­þings vestra til ofangreindra skipa skal miða við meðaltal landaðs botnfiskafla, í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í Hvammstangahöfn síðastliðin þrjú fiskveiðiár, í þorskígildum talið. Viðmiðunarárin eru 3 síðustu fiskveiðiár, nú 2013/2014, 2014/2015 og 2015/2016.
  b) 20% af byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 641 frá 8. júlí 2016, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2016/2017, miðað við meðaltal landaðs botnfisk­afla, í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í Hvammstangahöfn síðastliðin þrjú fiskveiði­ár, í þorskígildum talið. Viðmiðunarárin eru 3 síðustu fiskveiðiár, nú 2013/2014, 2014/2015 og 2015/2016.
  c) Skip eiga rétt til úthlutunar úr báðum pottum samkvæmt a- og b-lið, að uppfylltum skil­yrðum.
  d) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. sept­ember 2016 til 31. ágúst 2017.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fisk­veiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. nóvember 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Hinrik Greipsson.


B deild - Útgáfud.: 1. desember 2016