Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1425/2022

Nr. 1425/2022 6. desember 2022

AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um reikning fyrninga og vaxta vegna fjármögnunarleigu fólksbifreiða.

Útreikningur frádráttarbærs hluta leigugreiðslna rekstrarárið 2022 vegna fjármögnunarleigu á fólks­bifreiðum fyrir færri en 9 menn, þó að undanskildum leigubifreiðum skv. 4. tölul. 50. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal vera sem hér segir:

  1. Fyrningargrunnur telst vera kaupverð bifreiðar eins og það er ákveðið við kaup leigusala (fjármögnunarleigufyrirtækis) á viðkomandi bifreið að frádregnum áður fengnum fyrning­um.
  2. Til frádráttar hjá leigutaka á rekstrarárinu 2022 telst 20% fyrning af fyrningargrunni skv. 1. tölul. hér að framan, að viðbættum 5,3% vöxtum reiknuðum hlutfallslega miðað við upphaf eða lok leigutíma á árinu 2022. Vextir reiknast af fyrningargrunni.
  3. Fyrning skv. 2. tölul. hér að framan er heimil að fullu rekstrarárið 2022, hvort sem leigu­tímabilið hefst eða því lýkur á því ári.

 

Reykjavík, 6. desember 2022.

 

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 19. desember 2022